Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Fæðufullveldi fer dvínandi
Fréttir 6. mars 2025

Fæðufullveldi fer dvínandi

Höfundur: Þröstur Helgason

„Ýmislegt bendir til þess að fæðufullveldi í Evrópu fari dvínandi,“ sagði Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, á fundi um íslenska matvælaframleiðslu í síðustu viku.

„Þessi þróun skapar hættu á dvínandi fæðufullveldi, þ.e. minni framleiðsla í Evrópu kallar á aukinn innflutning, svo Evrópa verður háðari matvælum sem framleidd eru undir öðrum reglum og kröfum sem ESB hefur ekkert að segja um.“

Hækkandi tollar og viðskiptahindranir geta raskað aðgengi að innfluttum matvælum, sem gerir löndum mikilvægt að treysta á eigin framleiðslu, sagði Margrét enn fremur en í erindi sínu á fundinum talaði hún um mikilvægi fæðufullveldis þjóða við breyttar aðstæður í alþjóðasamfélaginu. Bandaríkin, eitt stærsta efnahagsveldi heims, geta með tollahækkunum haft áhrif á alþjóðaviðskipti og matvælaverð, sem getur bitnað á fæðuöryggi margra ríkja.

„Jafnframt hefur innrás Rússlands í Úkraínu truflað framboð á mikilvægum landbúnaðarafurðum eins og korni og áburði sem hefur leitt til hærra matvælaverðs. Þetta undirstrikar þörf ríkja fyrir að efla sjálfbæra matvælaframleiðslu og styðja við bændur í sínu heimalandi,“ sagði Margrét.

Fæðufullveldi sterkt en brothætt

Fæðufullveldi snýst um rétt fólks til heilbrigðra og menningarlega viðeigandi matvæla sem framleidd eru með vistvænum og sjálfbærum aðferðum og rétt þeirra til að skilgreina eigin matvæla- og landbúnaðarkerfi. Fæðufullveldi einblínir á vonir og þarfir þeirra sem framleiða, dreifa og neyta matvæla, frekar en kröfur markaða og fyrirtækja – í matvælakerfum og stefnum.

efnum. Samkvæmt nýlegri samantekt frá Farm Europe er fæðufullveldi ESB í heild sinni áfram sterkt – en brothætt, sagði Margrét. „Sambandið er útsett fyrir geopólitískum sviptingum, loftslagsáhættu og aðgangi að fóðri og orku. Reyndar hefur sjálfsaflahlutfall ESB í fóðri farið hratt versnandi, sérstaklega hvað varðar ræktun í Frakklandi, Þýskalandi og á Ítalíu.

Þá eru þjóðir þar, líkt og hér, að horfa upp á fækkun bænda og versnandi afkomu þeirra. ESB á það einnig sameiginlegt með Íslandi að meðalaldur bænda fer hratt hækkandi.“

Þarf að tryggja samkeppnishæfni

Margrét velti sömuleiðis fyrir sér fæðufullveldi Íslands. „Við viljum vita hvaðan maturinn okkar kemur og undir hvaða kringumstæðum hann er framleiddur,“ svaraði Margrét. „Þar má t.d. nefna að hérlendis er notkun sýklalyfja og varnarefna með því lægsta sem þekkist innan OECD-landanna og vel er fylgst með kjörum og réttindum bænda og starfsfólks í matvælaframleiðslu. Við skilgreinum sjálf okkar eigið landbúnaðarkerfi og hvernig við viljum að maturinn sé framleiddur. Við höfum lítið um það að segja þegar kemur að innfluttum matvælum.“

Margrét sagði enn fremur að til þess að styrkja fæðufullveldi Íslands þyrfti að efla sjálfbæra matvælaframleiðslu og styðja við innlendan landbúnað. „Við þurfum að tryggja samkeppnishæfni greinarinnar. Sé hún ekki tryggð verður íslenskur landbúnaður undir í keppni við innflutt matvæli, innlend framleiðsla dregst saman og við verðum háðari innfluttum matvælum. Þá höfum við ekki mikið að segja um framleiðsluaðferðir, lyfjanotkun, kjör þeirra sem að framleiðslunni standa, aðbúnað dýra og svo má lengi telja.“

Fundurinn bar yfirskriftina „Íslensk matvæli – einkamál fárra eða hagsmunir allra?“ en að honum stóðu Bændasamtök Íslands, Samtök ungra bænda, Samtök smáframleiðenda matvæla, Beint frá býli, Samtök afurðastöðva í mjólkurframleiðslu og Samtök fyrirtækja í landbúnaði.

Nýtt Bændablað kom út í dag

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.