Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Norræn rauð kýr.
Norræn rauð kýr.
Mynd / Viking Genetics
Fréttir 5. desember 2024

Erlend kúakyn myndu skila mun meiri framlegð

Höfundur: Sigurður Már Harðarson og Guðrún Hulda Pálsdóttir

Ný skýrsla Landbúnaðarháskóla Íslands, þar sem fjögur erlend kúakyn voru borin saman við íslenska kúakynið, leiðir í ljós að möguleg framlegð væri mun meiri í mjólkurframleiðslu yrði hér skipt um kúakyn.

Í skýrslunni, sem heitir Samanburður á rekstrarhagkvæmni mjólkurframleiðslu á Íslandi með íslenskum og erlendum mjólkurkúakynjum, er meðal annars lagt mat á möguleg áhrif slíkra breytinga á rekstur kúabúa á Íslandi.

Einnig eru ýmis framkvæmdaratriði varðandi slíkan innflutning skoðuð og hugað að þáttum sem varða vernd íslenska kúakynsins.

Fram kemur að íslenskar mjólkurkýr skili minni meðalafurðum en helstu mjólkurframleiðslukyn nágrannalandanna og því hafi ítrekað verið stungið upp á innflutningi annarra kynja sem leið til að gera kúabúskap á Íslandi hagkvæmari.

Framlegð ykist um 3,3 milljarða

Til samanburðar við íslenska kúakynið voru norskar rauðar kýr (NRF), norrænar rauðar (NR), norrænar Holstein-kýr (NH) og danskar Jersey-kýr (DJ).

Í skýrslunni kemur fram að heildarframlegð kúabúskapar ykist um 3,3 milljarða íslenskra króna ef NR tæki hér yfir og aðeins litlu minna með NRF eða NH. Um tveggja milljarða aukning á framlegð myndi nást með DJ.

Færri kýr og samdráttur í metanlosun

Í skýrslunni er tekið dæmi um að ef horft sé á mjólkurframleiðslu í landinu í heild, gætu 14 þúsund kýr af NH- eða DJ-kyni skilað því sama og þær um það bil 25 þúsund kýr á Íslandi gera nú.

Þá segir í skýrslunni að vegna mikillar fækkunar kúa við að skipta yfir í nýtt kúakyn myndi heildar metanlosun kúastofnsins minnka um 10–24 prósent samkvæmt gefnum forsendum. Minnst væri minnkunin með NRF og mest með DJ. Mest kjötframleiðsla yrði aftur á móti með NRF.

Framlegð kúabúskapar á landinu í heild og heildarfjöldi kúa með íslenskar (ISL), norrænar Holstein (NH), norskar rauðar (NRF), norrænar rauðar (NR) eða danskar Jersey (DJ) kýr miðað við að framleiðsla mjólkurfitu haldist óbreytt. Ríkisstuðningur er ekki inni í framlegðartölum. Mynd / Skýrslan Samanburður á rekstrarhagkvæmni mjólkurframleiðslu á Íslandi með íslenskum og erlendum mjólkurkúakynjum

Tryggja þurfi varðveislu gripa af íslenska kyninu

Varðandi áframhaldandi vernd á íslenska kúakyninu, segir í skýrslunni að stofninn sé lítið skyldur öðrum mjólkurframleiðslukynjum og hafi því mikið gildi fyrir varðveislu erfðaauðlinda nautgripa.

Ef annað kúakyn tæki yfir mjólkurframleiðslu á Íslandi þurfi að tryggja varðveislu óblandaðra gripa af íslenska kyninu. Kynbótastarfinu yrði þá nær eingöngu beitt í þágu viðhalds erfðafjölbreytni sem myndi valda kostnaði sem þyrfti að koma til móts við. Sá kostnaður væri þó lítill miðað við metinn ávinning af nýju kúakyni í mjólkurframleiðslunni.

Jón Hjalti Eiríksson
Kemur ekki á óvart

„Niðurstöðurnar koma ekki á óvart,“ segir Jón Hjalti Eiríksson, kennari við Landbúnaðarháskóla Íslands og einn höfunda skýrslunnar. „Við fengum heldur meiri ábata heldur en var metinn árið 2007 en þó af sömu stærðargráðu. Stóru línurnar eru að það lítur út fyrir að það geti verið hægt að framleiða mjólk í landinu með töluvert minni kostnaði með öðru kúakyni. Það breytir því ekki að það er mikilvægt að íslenska kúakynið sé varðveitt með einhverjum hætti því það er mikilvæg erfðaauðlind.

Hvað verður gert með þessar upplýsingar er í höndum kúabænda og stjórnvalda, hvort kúabændur vilji fara í þessa vegferð og hvaða umgjörð verður um það til að tryggja sóttvarnir og varðveislu íslenska kúakynsins.“

Skylt efni: mjólkurframleiðsla

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.