Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Hunangsframleiðendur í Evrópu- sambandinu framleiða um 60% af því sem neytt er í álfunni.
Hunangsframleiðendur í Evrópu- sambandinu framleiða um 60% af því sem neytt er í álfunni.
Mynd / Aaron Burden
Fréttir 13. desember 2022

Erfitt uppdráttar hjá hunangsframleiðendum

Höfundur: Erla Hjördís Gunnarsdóttir

Hunangsframleiðendur í Evrópu horfðu fram á sögulega lélegt framleiðsluár í fyrra og nú lítur út fyrir að árið í ár muni litast af miklum andstæðum í álfunni.

Í Norður-Evrópu var framleiðsla yfir meðallagi góð á meðan suðurhluti álfunnar, þar sem mesta framleiðslan á sér stað í venjulegu ári, varð fyrir alvarlegum þurrkum, svo framleiðsla þar var allt að 80% minni en í meðalári.

Síðastliðið sumar í Norður- Evrópu einkenndist af blómstrandi vori með nægri nektarframleiðslu þar sem rigndi reglulega á meðan Suður-Evrópa glímdi við eina verstu þurrka í áratugi sem hafði áhrif á getu býflugnanna til að framleiða hunang. Enn fremur hefur orkukreppan og almenn verðbólga haft alvarlegar afleiðingar á afkomu evrópskra býflugnaræktenda svo margir hverjir óttast um framtíðarstöðu greinarinnar. Sem dæmi má nefna hækkun á verði umbúða, þar með talið á glerkrukkum, sem hefur verið á bilinu 15-60% eftir löndum, eldsneyti upp undir 40% hækkun, rafmagn á bilinu 50-150% hækkun ásamt fóðri fyrir býflugur, sem hefur hækkað um allt að 70%. Með hliðsjón af því að birgðir hunangs frá 2021 til 2022 hafa verið mjög litlar og eftirspurn haldist stöðug þá sýnir núverandi staða nokkurt ósamræmi á evrópskum markaði.

Krefjast aðgerða

Stanislav Jaš, formaður vinnuhópsins Hunang, hjá Evrópusamtökum bænda, Copa Cogeca, vakti máls á vandanum á dögunum og lét eftirfarandi ummæli falla:

„Evrópskir býflugnaræktendur eru að ganga í gegnum mjög mikilvægt tímabil. Ég hef á tilfinningunni að ég sé að endurtaka mig ár eftir ár en sjálfbærni evrópskrar framleiðslu og nauðsynleg frjóvgunarþjónusta er í húfi. Við erum að missa framleiðslumöguleika á mörgum lykilsvæðum í Evrópu, aðallega vegna loftslagsbreytinga og efnahagsástands sem ógnar hagkvæmni býflugnaræktar alls staðar í ESB. Meira en nokkru sinni fyrr verðum við að sjá gagnsæi á hunangsmarkaði. Í samræmi við víðtæka stefnumótun um sjálfbærni samkvæmt evrópska græna samningnum, eins og Farm to Fork- stefnunni, getur framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, ásamt evrópskum höfuðborgum, komið á fót áþreifanlegum verkfærum og aðferðum sem gætu hjálpað bæði framleiðendum og neytendum. Við biðjum um raunverulegar aðgerðir!“

Fleiri bú en minni framleiðsla

Vegna stöðunnar hefur Copa Cogeca ítrekað ákall sitt um endurskoðun á hunangstilskipun ESB, sem á meðal annars að styrkja upprunamerkingar ásamt því að bæta reglur um rekjanleika til að berjast gegn viðskiptum með falsað hunang. Nauðsynlegt þykir að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leggi til lagabreytingar og eftirlitskerfi sem styður við afkomu hunangsframleiðenda, tryggi aðgang neytenda að ósviknum og vönduðum mat og geri aðildarríkjunum kleift að berjast gegn svikum.

Hunangsframleiðendur í Evrópusambandinu framleiða um 60% af því sem neytt er í álfunni. Samkvæmt Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO), dróst framleiðslan í ESB saman um 16% milli áranna 2015-2020 en fjöldi býflugnabúa jókst um 16% á sama tíma. Frá árunum 2016-2021 hefur innflutningur á hunangi frá Kína til ESB verið stöðugur en á sama tíma hefur meðalinnflutningsverð lækkað um 21%. Hins vegar hefur innflutningur frá Úkraínu aukist á sama tíma um 47% og er núverandi meðalverð á evrópsku hunangi sem selt er í lausu á bilinu 3-5 evrur á kílóið.

Skylt efni: hunang

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.