Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Í þessu heimsstríði virðist þessi byssa virka best í stríðsrekstrinum.
Í þessu heimsstríði virðist þessi byssa virka best í stríðsrekstrinum.
Fréttir 31. janúar 2022

Erfitt að sleppa

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson - liklegur@internet.is

Í síðasta pistli hér skrifaði ég um hvernig ég reyndi að sleppa við að smitast af Covid-19 með því að gera mitt besta í smitvörnum og fara í einu og öllu eftir þeim leiðbeiningum sem ég hafði aflað mér, en þegar veiran kom inn á mitt heimili lágu allir fyrir rest.

Fyrsti smitaði fékk ekki inni á sóttvarnarhóteli sem var fullt, næsti greindist þrem dögum seinna, næsta smit þrem dögum síðar og degi eftir það var röðin komin að mér. Gjörsamlega einkennalaus tók ég heimapróf og niðurstaðan var Covid-19. Dreif mig í sýnatöku og fékk staðfestingu á smiti.

Algjörlega einkennalaus allan tímann

Við tók viku einangrun, fór varla út nema með hundinn til að gera þarfir sínar. Á góða að og fékk helstu nauðsynjar afhentar á tröppurnar við útidyrnar.

Alla vikuna fann ég aldrei fyrir neinum einkennum, en aðrir heimilismenn fundu lítillega fyrir einkennum í stuttan tíma, s.s. hæsi, hósta, svitabaði og óþægindum í hálsi.
Þegar sá fyrsti var smitaður var farið yfir sóttvarnarferli sem við töldum vera „pottþétt“ og unnið eftir því. Þvo sér um hendur, spritta og spritta allt sem máli skiptir. Sprittlyktin minnti á tímabil í mínu lífi fyrir 40 árum að eima landa heima, spíralykt um allt hús, en allt kom fyrir ekki. Ekki vitum við hvar og hvernig við smituðumst af hvert öðru, en grunurinn beinist að hugsunarleysi. Við notuðum öll sömu tannkremstúpu.

Þökkum bólusetningu lítil og engin einkenni

Allt heimilisfólkið hefur verið bólusett. Hundurinn er óbólusettur og í þessari viku sem við vorum öll heima virtist hundurinn vera veikastur og stundum hálf rænulaus. Við hjónin vorum þríbólusett og synirnir tvíbólusettir.

Við fengum ýmist væg eða engin einkenni í bólusetningunum, en miðað við misjafna sögu af þessari veiru þá hefði ég ekki viljað fá Covid-19 óbólusettur. Ég er sannfærður um að ég hefði einfaldlega drepist hefði ég smitast óbólusettur.

Rök andstæðinga bólusetninga standast varla í mínum huga

Andstæðingar bólusetninga fara mikinn, hafa hátt og segja setningar sem varla standast. Hef í því sambandi oft vitnað í setningu frá fyrrum sveitunga mínum sem hæfir andstæðingum bólusetninga vel: – „Huglausasti hundurinn í sveitinni geltir hæst.“

Andstæðingar segja m.a. að bólusettir veikist frekar, veikist meira og oftar, en samkvæmt mínum heimildum er dánartíðni óbólusettra mikið hærra en bólusettra og að veikin fari mun verr með óbólusetta og taki þá lengri tíma að jafna sig.

Það eina sem mögulega er hægt að taka undir í rökum andstæðinga bólusetninga er að bólusettir veikist frekar og getur kannski staðist að einhverju leyti.

Bólusettir þurfa líka að gæta að sér

Hvað gera bóluefnin? „Ekkert bóluefnanna er 100% vörn, en öllum bóluefnunum er ætlað að minnka veikina þegar viðkomandi smitast, en útskýring á bóluefnum er svolítið langt mál. Bóluefnin byggja upp lítillega öðruvísi mótstöðu en sú sem myndast við að fá veikina sjálfa. Hvorugt ver fyllilega gegn nýju smiti en bæði verja vel fyrir alvarlegum veikindum.“ Þetta er stysta mögulega svar lyfjafræðings við spurningu um bóluefnin.

Miðað við fjölda bólusettra sem veikjast má eflaust álykta að bólusettir fari ekki eins ákveðið og markvisst eftir smitvörnum í þeirri trú að þeir veikist ekki vegna bólusetningarinnar.

Eflaust mætti fræða bólusetta betur um virkni bólusetninga og að þeir þurfi þrátt fyrir vörn í líkamanum að passa sig. Eftir að „veikjast“ af Covid-19 og finna aldrei fyrir neinum einkennum, tel ég að það sé margt fólk úti í samfélaginu sýkt og hafi ekki hugmynd um það og er þá líka óafvitandi að smita aðra.

Heimaprófið bjargaði því að ég greindist með Covid-19 í tíma og tel ég mig ekki hafa smitað neinn og því mæli ég með að fólk taki heimapróf hafi það minnsta grun um að það hafi smitast.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.