Endurvekja gömul eplayrki
Mynd / Unsplash, Olivie Strauss
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samstarfi að því að rækta tvö gleymd eplayrki og koma þeim aftur í hillur matvöruverslana. Eplayrkin eru Ilzer Rosenapfel, sem þekkist allt frá 1840, og Falchs Gulderling, sem fannst fyrst árið 1870.

Á tilraunakari í Styríu-fylki í Asuturríki eru nú 2.150 eplatré í ræktun. Fyrstu eplin hafa verið tínd og eru á leið í verslanir og skóla í Vínarborg, samkvæmt frétt breska fréttamiðilsins Guardian. Í dag eru aðeins um 10 af þeim 2.000 yrkjum sem eru til sölu í Austurríki í raun austurrísk. Ef tilraunin gengur vel og tekst að framleiða nær gleymdu eplin í matvælaframleiðslu fyrir stórverslanir er stefnan á að selja þau um allt land.

Katrin Hohensinner-Häupl, meðframkvæmdastjóri Frutura, segir verkefnið vera dans á milli nýsköpunar og áralangrar landbúnaðarvitneskju. Að endurvekja gömlu eplayrkin er því bæði að varðveita ræktunarsögu og matarsögu og að stuðla að líffræðilegum fjölbreytileika. Varaforstjóri Spar, Markus Kaser, segir að þetta sé einnig jákvætt fyrir neytendur sem eru símeðvitaðri um uppruna og ræktun matvara.

Elsta eplayrkið sem enn er aðgengilegt er að öllum líkindum Goldparmäne, sem þekkist frá 16. öld frá Normandy í Frakklandi. Yrki hafa bæði horfið vegna loftslagsbreytinga, vegna stríða, við iðnvæðingu landbúnaðar og tilhneigingu markaðsafla til að forgangsraða sætu bragði.

Matgæðingar eru spenntir fyrir því að fá ný bragðtegundir inn á markaðinn. Ilzer Rosenapfel-yrkið er dökkbleikt með ljósgulum eða grænum lit að utan og hvítt safaríkt hold. Ilmur þess er sagður sterkur og kryddaður og bragðið örlítið súrt. Gulderling-yrkið er djúprætt og stærra en hitt. Holdið er safaríkt en stökkt og er bragðinu einnig lýst sem sætu með súrum tón. Hohensinner-Häupl segir einnig að bragðið minni hana á epli úr barnæsku.

Skylt efni: eplarækt | Austurríki

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...