Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Umfangsmikil endurheimt vistkerfa á vegum Lands og skógar hefst í sumar.
Umfangsmikil endurheimt vistkerfa á vegum Lands og skógar hefst í sumar.
Mynd / Úr safni
Fréttir 12. mars 2026

Endurheimt vistkerfa á ríkisjörðum

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Í undirbúningi er átak í endurheimt votlendis á ríkisjörðum í umsjón Lands og skógar.

Verkefnið er liður í boðuðum aðgerðum stjórnvalda gegn loftslagsbreytingum, en lögð er áhersla á endurheimt vistkerfa sem meginstoð í þeim aðgerðum.

Sex ríkisjarðir í sumar

Byrjað verður á sex ríkisjörðum strax næsta sumar og svo öðrum sjö sumarið 2027. Samkvæmt upplýsingum frá Landi og skógi er um umfangsmikla endurheimt vistkerfa að ræða.

Á þessu ári er stefnt að endurheimt á um 239 hekturum, gróflega áætlað. Jarðirnar eru flestar í eyði eða í umsjá ríkisstofnana og staðsettar á Suður-, Vestur- og Austurlandi. Samhliða er gert ráð fyrir endurheimt birkiskóga á þremur ríkisjörðum árið 2026, samtals á um 55 hekturum. Verkefnin eru að mestu leyti innan núverandi umsjónarsvæða Lands og skógar á Suðurlandi, en jafnframt er unnið að frekari undirbúningi endurheimtar birkiskóga víðar um landið. Þessi verkefni eru hluti af stærra átaki sem Land og skógur hyggst ráðast í til að efla birkiskóga landsins.

Undirbúningur hafinn

Árið 2027 er stefnt að endurheimt votlendis á samtals um 371 hekturum. Einnig er áætlað að endurheimta birkiskóga á sjö ríkisjörðum á um 400 hektara svæði.

Í svörum Lands og skóga við fyrirspurn um verkefnin segir að undirbúningur aðgerða fyrir árið 2026 sé þegar hafinn, samhliða skipulagningu verkefna fyrir árið 2027. Unnið sé að kortlagningu svæða, nánari útfærslu framkvæmda og gerð umsókna um nauðsynleg framkvæmdaleyfi. Þá sé jafnframt unnið að greiningu á hentugleika annarra ríkisjarða til endurheimtar votlendis og birkis í tengslum við forgangsröðun aðgerða á komandi árum.

Lögð verði rík áhersla á gott samstarf við heimafólk og aðra hagaðila í allri áætlanagerð og framkvæmd. Áformað sé að kynna verkefnin í heimabyggð auk þess sem samráð verður haft við nágranna og nærsamfélög, enda litið svo á að samfélagsleg sátt sé forsenda árangursríkrar endurheimtar.

Röskun á 90% votlendis

Í tilefni af alþjóðlegum degi votlendis 2. febrúar var fjallað um votlendi og fyrirhugað verkefni á vef Lands og skógar. Þar segir að frá iðnbyltingu hafi nærri 90% af öllu votlendi í heiminum verið raskað og staðan nú sé sú að hraðar gangi á votlendi í heiminum en skóga.

Íslendingar geti nú lagt sitt af mörkum til þeirrar baráttu að snúa þróuninni við. Mikið votlendi hafi verið ræst fram á Íslandi á síðustu öld, en nú hafi búskapur víða dregist saman eða lagst af og því séu tækifæri til að breyta framræstu landi í votlendi á ný með öllum þeim ávinningi sem í því felst. Með því minnkar losun koltvísýrings frá landi og til verði vistkerfi sem séu mikilvæg fuglasvæði og fóstri fjölbreytt lífríki.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.