Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Svava Rafnsdóttir, garðyrkjufræðingur í Bjarkarási, með viðurkenninguna um „Verknámsstað garðyrkjunnar“.
Svava Rafnsdóttir, garðyrkjufræðingur í Bjarkarási, með viðurkenninguna um „Verknámsstað garðyrkjunnar“.
Mynd / smh
Fréttir 15. október 2025

Elsta starfandi lífrænt vottaða garðyrkjustöðin

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Gróðurhúsið Bjarkarás í Fossvoginum í Reykjavík var byggt af Ási styrktarfélagi 1991 og tekið í notkun 1993. Það fékk lífræna vottun frá Túni árið 1996 en það tekur að jafnaði 3 ár í aðlögun að fá slíka vottun. Gróðurhúsið var með fyrstu stöðvunum til að fá slíka vottun.

Eftir að Sólheimar gáfu vottunina upp á bátinn árið 2023 er Bjarkarás elsta starfandi lífrænt vottaða garðyrkjustöðin. Nú er stefnt að stækkun stöðvarinnar.

Þrjú tómatayrki eru í ræktun í Bjarkarási.
Margar tegundir í skiptiræktun

Gróðurhúsið er ekki stórt, um 180 fermetrar, en þar eru þó í ræktun þrjú tómatayrki, tvö gúrkuyrki, paprika, chili og svo ýmislegt annað í smáum stíl eins og maís, kúrbítur, eggaldin, melónur og baunir. Að sögn Svövu Rafnsdóttur, sem er garðyrkjufræðingur og hefur gegnt stöðu ræktunarstjóra frá 1. maí 2015, er stunduð skiptiræktun þannig að misjafnt er eftir árum hvað er ræktað.

Einnig er um 320 fermetra útisvæði fyrir grænmetisræktun og þar hafa ýmsar tegundir verið í ræktun enda skiptiræktun þar einnig. Meðal tegunda má nefna gulrætur, hnúðkál, fennel, sellerí, grænkál, hvítkál, gulrófur, pak choi, rauðrófur, blaðlaukur, vorlaukur, salat og kryddjurtir. 

Enginn tilbúinn áburður og engin eiturefni

Í lífrænni vottaðri ræktun er farið eftir settum reglum sem gilda um slíka ræktun og Vottunarstofan Tún sér um að votta framleiðsluna. Enginn tilbúinn áburður er leyfilegur, en í Gróðurhúsinu í Bjarkarási er notaður hrossaskítur, þörungamjöl og fljótandi þörungaáburður. Einnig áburður sem unninn er úr gerjuðum sykurreyr og vínberjahrati.

Engin eiturefni eru notuð né önnur hefðbundin varnarefni, heldur lífræn sápa og lífrænar varnir, til dæmis ránsvespur. Allt sem fellur til í ræktuninni fer í safnhaug sem verður svo að góðri gróðurmold sem er notuð á stöðinni.

Ragnhildur Þórarinsdóttir, þroskaþjálfi og garðyrkjunemi, stundar verknám í Bjarkarási, og Svava Rafnsdóttir ræktunarstjóri í gróðurhúsinu. Það er hluti af námi Ragnhildar við Garðyrkjuskólann á Reykjum. Gróðurhúsið í Bjarkarási var einmitt útnefndur verknámsstaður ársins á viðburði á Reykjum á sumardaginn fyrsta síðastliðinn.
Afurðirnar seldar á nokkrum stöðum

Grænmetið frá Gróðurhúsinu í Bjarkarási er selt á nokkrum stöðum; í Hygge-bakaríinu í Grímsbæ sem áður hét Brauðhúsið, í Fjarðarkaupum, í Melabúðinni og í áskriftasölu beint frá gróðurhúsinu. Þá kaupir Ás styrktarfélag grænmeti af stöðinni til nota í eldhúsinu þar sem útbúnar eru máltíðir fyrir starfsmenn Áss.

Starfsmenn gróðurhússins auk Svövu og Ragnhildar eru Sigrún Hallgrímsdóttir tómstundafræðingur og Hartmann Antonsson þroskaþjálfi. Einnig er starfsfólk í vinnu og virkni frá Ási styrktarfélagi enda er gróðurhúsið í Bjarkarási fyrst og fremst hugsað sem vinnustaður fyrir fólk með þroskahömlun.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.