Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Ekki öll sagan sögð í verðkönnun ASÍ
Mynd / BBL
Fréttir 7. febrúar 2019

Ekki öll sagan sögð í verðkönnun ASÍ

Höfundur: Ritstjórn

Alþýðusamband Íslands hefur birt könnun þar sem verð á 18 tilgreindum matvörum er borið saman í höfuðborgum Norðurlandanna í desember síðastliðnum.  Um er að ræða algengar matar og drykkjarvörur og kemur þar fram að vörukarfan sé hvergi dýrari en hér á Íslandi.  Samanburðurinn umreiknar verðið í íslenskar krónur á þeim tíma sem könnunin var gerð. 

Talsvert hefur verið fjallað um könnunina í fréttum í dag og einkum er þá ráðist að tollvernd landbúnaðarvara.

Taka verður tillit til fleiri þátta

Sindri Sigurgeirsson formaður BÍ segir að könnun ASÍ segi vissulega ákveðna sögu en taka verði tillit til fleiri þátta. „Ég hefði viljað sjá svona kannanir gerðar oftar en á 12 ára fresti, 2006 og 2018.  Í bæði skiptin er gengi krónunnar sterkt, en staðan gjörbreyttist í millitíðinni.  Það er ekki deilt um að verðlag á Íslandi er hátt á flestum vörum samanborið við önnur Evrópulönd, en það er kaupmátturinn sem skiptir mestu.  Hvað færðu fyrir þínar ráðstöfunartekjur og hvað þarftu að nota stóran hluta af ráðstöfunartekjum til að kaupa í matinn.  Þar stöndum við vel á Íslandi.  Við þurfum aðeins að nota 10,6% ráðstöfunartekna til matarkaupa og erum þar í 6. sæti af 32 löndum í Evrópu skv. nýjustu tölum Hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat. 

Það er þetta sem segir til um raunveruleg lífskjör.  Vissulega nýtur landbúnaður ákveðinnar tollverndar og verð á framleiðslu hans er ekki yfir gagnrýni hafið, en það er þá eðlilegt að bera saman líka verð á vörum sem bera enga tolla, eins og fötum, skóm, raftækjum og fleiru.  Það má allt skoða í gögnum Eurostat og þar eru verðin oftar en ekki hæst á Íslandi.  Spaghetti er heldur ekki tollað svo ekki verður þeim kennt um mikinn verðmun þar.  Skoðum þetta bara allt.  Það er hið sanngjarna í málinu. Matvælaverð er meira en tvöfalt lægra í Rúmeníu en á Íslandi skv. samanburði Eurostat, en þrátt fyrir það þurfa heimili þar í landi að verja meira en tvöfalt hærri hluta af ráðstöfunartekjum sínum til matarkaupa en þau íslensku,“ segir Sindri.

Hlutfall útgjalda neytenda til kaupa á matvörum. Hagstofa ESB, Eurostat, metur hlutfall útgjalda neytenda til kaupa á matvörum.  Meðfylgjandi tafla sýnir hlutfall útgjalda til kaupa á matvörum á Evrópska Efnahagssvæðinu auk Sviss árið 2018.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.