Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Ekki bara núna, heldur alltaf!
Skoðun 24. apríl 2020

Ekki bara núna, heldur alltaf!

Höfundur: Sigmar Vilhjálmsson, talsmaður FESK, Félags eggja-, svína- og kjúklingabænda á Íslandi.

Í COVID-faraldrinum sem við búum við þessa dagana þá leitar hugur margra að raunverulegum gildum lífsins. Flest erum við sammála um að heilsa, fjölskylda og nákomnir vinir eru það sem skiptir mestu máli.

Einnig hefur hugurinn leitað til sjálfstæðis og sjálfbærni. Ekki bara fjölskyldunnar og heimilisins, heldur samfélagsins alls. Við sem þjóð áttum okkur betur á því núna hvað það skiptir miklu máli að vera sjálfstæð og sjálfbær í okkar ákvörðunum. Okkur er líka ljóst á svona tímum úr hverju við erum gerð. Við sjáum hvað við erum mögnuð saman. Við stöndum saman og göngum saman í takt. Við hlýðum Víði og náum skjótum árangri saman. Lykilatriðið í þessum árangri er að við erum öll að taka þátt. Við lítum á það sem okkar samfélagslegu ábyrgð.

Samfélagsleg ábyrgð er hugtak sem er mikið notað af fyrirtækjum. Oft slá fyrirtæki um sig með þessu hugtaki án þess að raunverulega vera samfélagslega ábyrg. Samfélagsleg ábyrgð snýst ekki um að fyrirtæki styrki gott málefni heldur að það skili ávinningi til samfélagsins, ávinningi sem verður meðal annars til við endurnýtingu á auðlindum sem fyrirtækin nota í rekstri sínum, atvinnuskapandi, skapi störf í tengslum við sína starfssemi og auki þannig hagsæld samfélagsins í heild en ekki bara hag hluthafa.

Íslenskir bændur eru dæmi um samfélagslega ábyrga starfsstétt. Þeirra ræktun skilar ótal jaðarstörfum til samfélagsins á sama tíma og þeirra framlag til samfélagsins tryggir fæðuöryggi. Þessu þarf að halda til haga og standa þarf vörð um íslenska matvælaframleiðslu.

Það sem ógnar bændum og matvælaframleiðendum mest er innflutningur á matvælum sem við erum sjálfbær í að framleiða. Það sem ógnar bændum, ógnar okkur öllum. Það er þjóðaröryggi að vera sjálfbær í matvælaframleiðslu. Góðu fréttirnar eru þær að við sem þjóð getum tryggt þetta öryggi með vali okkar í verslunum. Að velja íslenskt fram yfir innflutt er okkar framlag í að tryggja þetta öryggi. Einnig getum við krafist þess að stjórnvöld standi betur vörð um matvælaöryggi.

Stjórnvöld hafa völd til að standa vörð um sjálfbærni þjóðarinnar í matvælaframleiðslu m.a. með milliríkjasamningum, búvörusamningum og tilslökunum á gjöldum er kemur að uppbyggingu og endurnýjun framleiðslubúa. Núverandi EES-samningur er í uppnámi, Bretland er gengið úr Evrópusambandinu og því er klár forsendubrestur á núgildandi EES-samningi. Utanríkisráðherra ætti að vera byrjaður í viðræðum við Evrópusambandið um nýjan samning í ljósi nýrra forsendna. Nýr samningur ætti að standa betur vörð um íslenskan landbúnað með mun skilgreindari skilmálum um innflutning frá Evrópu til Íslands. Skilgreina þarf betur hvað má flytja inn til landsins án tolla og hindra ætti innflutning á vörum sem við erum algjörlega sjálfbær í að framleiða sjálf.

Þetta er hagsmunamál okkar allra og það er okkar réttur og krafa að stjórnvöld standi vörð um okkar hag. Þangað til höfum við valið í versluninni: innflutt eða íslenskt. 

Stöndum vörð um íslenskt atvinnulíf, íslenskan landbúnað og íslenskt sjálfstæði. Ekki bara núna, heldur alltaf.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.