Helga Þorbergsdóttir, móðir Hörpu  Elínar heitinnar í Vík, afhenti styrkinn til Ann Irenu, eina milljón króna.
Helga Þorbergsdóttir, móðir Hörpu Elínar heitinnar í Vík, afhenti styrkinn til Ann Irenu, eina milljón króna.
Mynd / Aðsend
Fréttir 11. ágúst 2026

Einni milljón króna úthlutað

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Samfélagsverkefnið „Voices of Vík; Language, Culture & Community“, undir forystu Ann Irene Peters, hlaut fyrsta styrkinn úr svonefndum „Hörpusjóði“ Samtaka sunnlenskra sveitar- félaga, en hann var afhentur formlega á aðalfundi samtakanna í Þorlákshöfn 26. júní.

Alls bárust 13 umsóknir í sjóðinn, sem er til minningar um Hörpu Elínu Haraldsdóttur, sem var ötull talsmaður þess að taka vel á móti nýjum íbúum og draga fram það sem sameinar fólk á hverjum stað, en Harpa bjó í Vík í Mýrdal.

Verkefni Ann Irenu byggir á því að styrkja tengsl, þátttöku og tilfinningu fyrir því að tilheyra í hinu fjölmenningarlega samfélagi í Vík í Mýrdal.

Á tímabilinu ágúst 2026 til júlí 2027 verður staðið fyrir fjölmörgum viðburðum þar sem markmiðið er að efla samskipti milli íbúa með íslenskan og erlendan bakgrunn, draga úr félagslegri einangrun og auka samfélagslega samkennd. Meðal verkefna má nefna tungumála- kaffihús, kvikmyndakvöld og „Viks Got Talent“, sem er hæfileikasýning þar sem íbúar deila hæfileikum sínum og menningu.

„Við óskum Ann Irene Peters og íbúum í Mýrdalshreppi innilega til hamingju með styrkinn og hlökkum til að fylgjast með þessu mikilvæga inngildingarverkefni blómstra á komandi misserum,“ segir Ingunn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. 

Skylt efni: Hörpusjoður

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...