Rætt er við Ásdísi Hlökk Theodórsdóttur, annan höfund skýrslunnar um eignarhald á landbúnaðarlandi í Útvarpi Bændablaðsins.
Rætt er við Ásdísi Hlökk Theodórsdóttur, annan höfund skýrslunnar um eignarhald á landbúnaðarlandi í Útvarpi Bændablaðsins.
Mynd / bb
Fréttir 4. júní 2026

Eignarhald á landbúnaðarlandi í Útvarpi Bændablaðsins

Höfundur: Þröstur Helgason

Ný skýrsla um eignarhald á landbúnaðarlandi á Íslandi sýnir fram á að meirihluti lögbýla er ekki í virkri landbúnaðarnotkun. Tæpur fimmtungur góðs og mjög góðs ræktarlands er nýtt eða um 90.000 hektarar af 486.000.

Skýrslan skoðar þróun regluverks um eignarhald á landbúnaðarlandi og samanburð við önnur Norðurlönd, ESB og Bretland. Meginefni hennar er hvernig tryggja megi sjálfbæra nýtingu landbúnaðarlands, fæðuöryggi og byggð í dreifbýli.

Helstu niðurstöður eru að íslenskt regluverk sé tiltölulega frjálslegt miðað við mörg nágrannalönd. Jarðalög frá 1976 fólu áður í sér víðtækt eftirlit með jarðakaupum, búsetu og notkun lands, en með nýjum jarðalögum árið 2004 voru flestar takmarkanir felldar niður til að færa viðskipti með jarðir nær almennum fasteignamarkaði. Árið 2020 voru þó sett inn ákvæði til að takmarka jarðasöfnun, þannig að leyfi ráðherra þarf ef aðilar eiga þegar fleiri en fimm jarðir eða yfir 1.500 hektara lands.

Í nýjasta þætti Útvarps Bændablaðsins er rætt við Ásdísi Hlökk Theodórsdóttur, skipulagsfræðing, sem er annar höfunda skýrslunnar. Í þættinum er einnig rætt við Ingva Stefánsson, formann svínabænda, um það hvaða áhrif innganga í ESB myndi hafa á búgrein hans hér á landi.

 

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.