Edda Kristín er nýr blaðamaður á Bændablaðinu.
Edda Kristín er nýr blaðamaður á Bændablaðinu.
Mynd / Ástvaldur Lárusson
Fréttir 5. mars 2026

Edda Kristín nýr blaðamaður

Höfundur: Þröstur Helgason

Edda Kristín Sigurjónsdóttir hefur verið ráðin blaðamaður á Bændablaðinu.

Edda Kristín er með próf í garðyrkjufræði frá Garðyrkjuskólanum á Reykjum en hún er jafnframt með háskólapróf í hönnun og myndlist.

Hún hefur á undanförnum árum gegnt fjölbreyttum störfum í tengslum við garðyrkju og menningarlíf. Á undanförnum árum hefur hún starfað hjá Jurtaapótekinu að framleiðslu og þjónustu við viðskiptavini. Jafnframt hefur hún haldið úti fréttabréfi um menningu og listir á landinu í samstarfi við Greip Gíslason.

Edda Kristín segir starfið sameina merkilega margt af því sem hún brennur fyrir og hún hlakki til að takast á við nýtt hlutverk sem blaðamaður í góðu teymi blaðsins. „Tilfinningin er að snertifletir landbúnaðar við lífið séu svo margir að verkefnin muni veita i n n b l á s t u r dag hvern. Hvort heldur er æðarrækt, garðyrkjan, g e i t a r æ k t eða aðrar búgreinar, lýðheilsa og lífræn ræktun eða menningarlífið þá er af nægu að taka og landbúnaðurinn á spennandi stað. Ég hlakka til að rýna í samfélagið frá þessu nýja sjónarhorni, ferðast um landið og hitta bændur og taka púlsinn á skapandi hugum um land allt sem vinna að spennandi verkefnum og auðga samfélagið.“

Bændablaðið býður Eddu Kristínu velkomna til starfa.

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...