Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Drumboddsstaðir 1
Bóndinn 10. október 2019

Drumboddsstaðir 1

Við tókum við búi af foreldrum Jórunnar árið 2000. Árið eftir var farið í að breyta básafjósinu í lausagöngufjós með mjaltabás í hlöðunni.

Árið 2005 var byggt við og yfir gamla fjósið og útbúin lausaganga fyrir geldneyti og fóðuraðstaða. Árið 2018 var settur mjaltaþjónn.

Býli: Drumboddsstaðir 1 í Biskups­tungum.

Staðsett í sveit:  Bláskógabyggð í Árnessýslu.

Ábúendur: Jón Gunnarsson og Jórunn Svavarsdóttir.

Fjölskyldustærð (og gæludýra): Gamla settið er heima en krakkarnir, Laufey Ósk, 19 ára, og Ólafur Magni, 16 ára, stunda vinnu og framhaldsskólanám í Reykjavík.
Hundurinn Kátur gætir bæjarins ásamt fjósakettinum.

Stærð jarðar?  Um 400 ha og þar af ca 90 ha ræktaðir.

Gerð bús? Kúabú.

Fjöldi búfjár og tegundir? Um 60 mjólkurkýr og annað eins af geldneytum.

Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Þó kominn sé mjaltaþjónn er enn farið í fjós á „mjaltatímum“.
En á milli eru árstíðabundin störf og svo er endalaust hægt að laga og þrífa ef maður nennir.

Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Skemmtilegast er að horfa yfir heilbrigða hjörð. Leiðinlegast er að gera við eitthvað bilað og þá sérstaklega flórsköfur.

Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Vonandi blómlegan kúabúskap því að jörðin býður upp á það.

Hvaða skoðun hafið þið á félags­málum bænda? Þeir sem gefa sig í það eiga heiður skilinn en grasrótin þyrfti að vera öflugri.

Hvernig mun íslenskum land­búnaði vegna í framtíðinni? Við höfum tækifæri í hreinleika en við þurfum að passa vel upp á hann. Fá ekki inn alls konar sjúkdóma og sýklalyfjaónæmar bakteríur.

Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Alltaf er maður að vona að það takist að flytja út skyr framleitt á Íslandi.

Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, ostur, egg og gerjað fljótandi brauð.

Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Grillað nautakjöt.

Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Það var minnisstætt þegar kýrnar komust út um miðja nótt í dymbilvikunni og trömpuðu allt í kringum nýja íbúðarhúsið. Það vildi til happs að það var hvorki snjór né hálka og fullt tungl svo allar kýrnar fundust og engri varð meint af.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.