Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 11 ára.
Drukknun hrossa í Bessastaðatjörn ekki rakið til vanrækslu
Fréttir 13. janúar 2015

Drukknun hrossa í Bessastaðatjörn ekki rakið til vanrækslu

Höfundur: smh
Matvælastofnun hefur lokið rannsókn á drukknun 12 hrossa í Bessastaðatjörn 20. desember síðastliðinn. Að mati stofnunarinnar er slysið ekki rakið til vanrækslu umráðamanna á reglum um velferð hrossa.
 
Matvælastofnun rannsakaði aðbúnað og umhirðu hrossa í beitarhólfi á vegum hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi, sem telst vera ábyrgðaraðili hrossanna í þessu tilviki.  
 
Í tikynningu Matvælastofnunar segir:
Alls höfðu 55 hross verið sett í beitarhólfið til haustbeitar frá 1. september 2014 og var venjan að smala hrossunum síðasta laugardag fyrir jól á hverju ári. Framkvæmd var skoðun á 14 hrossum sem deilt höfðu beitarhólfinu með hestunum sem drápust til að meta ástand hrossanna. Ástand hrossanna gaf ekki til kynna að skort hafi á beit, vatn eða næringu fyrir hrossin í beitarhólfinu.
 
Sunnan megin í landinu er trjábelti og gamlar mannvistarleifar (stórar tóftir) nálægt hliðinu við sjóinn að vestanverðu. Náttúrulegt skjól er því til staðar í beitarhólfinu en skv. reglugerð nr. 910/2014 um velferð hrossa skulu hross sem ganga úti geta leitað skjóls fyrir veðri og vindum.
 
Skylt er skv. sömu reglugerð að hafa eftirlit með útigangi hrossa að lágmarki einu sinni í viku en auk þess er kveðið á um aukið eftirlit t.d. við slæmar veðuraðstæður. Að sögn forráðamanna Sóta er litið til hrossanna á 3 – 8 daga fresti yfir beitartímann af hálfu hestamannafélagsins Sóta auk þess sem eigendur líta af og til eftir hestum sínum. Fyrir smölun 20. desember hafði verið litið til hrossanna 13. og 14. desember skv. upplýsingum Sóta. Þá voru öll hrossin í haganum og ekkert óeðlilegt að sjá að mati þeirra sem kíktu á hrossin.
 
Alla jafna standa hestar í góðu ástandi vel af sér óveður að vetrarlagi og er fáheyrt að slys af þessum toga eigi sér stað. Óljóst er hvað hefur valdið því að hrossin ráku út á ísinn en svo virðist sem að hættulegar aðstæður hafi skapast við það að tjörnina lagði, með ótraustum ís snævi lögðum, samhliða miklu veðuráhlaupi á dimmasta tíma ársins. Hins vegar verður ekki séð að umráðamenn dýranna hafi gerst brotlegir á ákvæðum reglugerðar um velferð hrossa. Matvælastofnun hefur birt skýrslu um niðurstöður rannsóknarinnar sem er aðgengileg hér að neðan.

Skylt efni: hross | aðbúnaður | umhirða

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.