Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 11 ára.
Jón Eggert Bragason.
Jón Eggert Bragason.
Fréttir 16. október 2014

Dreif- og fjarnám skorið niður við Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Fjölbrautaskóli Snæfellinga (FSN) í Grundarfirði fagnaði tíu ára afmæli sínu 2. október síðastliðinn. Þykir skólinn hafa verið mikil lyftistöng fyrir byggðina á Snæfellsnesi.

Liður í aukinni þjónustu við íbúana hefur verið dreif- og fjarnám. Námsframboð í heimabyggð hefur skilað FSN um 80% af hverjum árgangi sem útskrifast úr grunnskóla á upptökusvæði FSN. Nú eru hins vegar alvarlegar blikur á lofti vegna niðurskurðaráforma í fjárlögum fyrir árið 2015.  

Jón Eggert Bragason, skóla­meistari FSN, segir að á kynningarfundi 10. september hafi mennta-  og menningarmálaráðherra kynnt skólastjórnendum áherslur fjárlagafrumvarps 2015. Þar var boðaður niðurskurður til framhaldsskólanna um 916 ársnemendur og fyrir FSN verður fækkað úr 185 í 151, eða um 34.

„Þetta þrengir verulega aðgang eldri nemenda að skólanum vegna þess að yngstu nemendurnir hafa forgang. Ef yngri nemendur fylla kvótann þá eru dreif- og fjarnemendur úti.

Við höfum líka verið að kenna nemendum á Kvíabryggju og verið í samstarfi við grunnskóla á svæðinu sem nú er í verulegri hættu,“ segir Jón Eggert.

Flestir hópar munu ekki standast stærðarviðmið

Á almanaksárinu 2014 er gert ráð fyrir að dreif- og fjarnemar við FSN skili skólanum um 30 ársnemum, en einstaklingarnir eru auðvitað mun fleiri á bak við þá tölu þar sem þeir eru ekki í fullu námi. Þessir nemendur hafa blandast inn í hópa yngri dagskólanemenda og gert það að verkum að hægt er að halda úti kennslu í fjölmörgum áföngum þar sem fjöldinn í hóp verður ásættanlegri. Ef dreif- og fjarnemar hverfa úr FSN þá dregst námsframboð við skólann saman. Ef rekstrarhæfi skólans versnar frá því sem nú er óttast skólameistari um sjálfstæði skólans.

Framhaldsdeildin á Patreksfirði er ekki í hættu

„Við erum búin að reka framhaldsdeild á Patreksfirði síðan 2007 sem er hluti af þessu dreifnámsfyrirkomulagi.“

Jón Eggert telur að þeim nemendum sé ekki ógnað þar sem þeir eru frá 16 ára aldri og falla því undir forgangshóp.

„Fyrir utan þá sem eru á Patreksfirði erum við með um 80 nemendur í dreifnámi í vetur. Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga 2015 verður 18,4% skerðing á ársnemum frá árinu 2014. Þetta er samkvæmt stefnumörkun ráðherra sem vill ekki að við séum að fást við fullorðinsfræðslu og annað sem aðrir geti séð um,“ segir Jón Eggert.

Eigum að henda út nemendum yfir tilteknum aldri

Ef fjárlög 2015 verða á þeim nótum sem frumvarpið gerir ráð fyrir þá verðum við að bregðast við strax fyrir vorönn 2015 og fækka hjá okkur nemendum. „Hugmyndir ráðherra mennta- og menningarmála ganga út á að nemendur sem eru eldri en 25 ára sæki sér menntun í úrræði fullorðinsfræðslunnar svo sem símenntunarmiðstöðvar og háskólabrýr.

Þetta er bráðalvarleg staða sem við stöndum vonandi ekki frammi fyrir eftir samþykki fjárlaga 2015,“ segir Jón Eggert.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.