Hans Erik og Kirsten, kona hans, taka á móti verðlaununum úr hendi Doru Dexler, forseta IFOAM, við hátíðlega athöfn.
Hans Erik og Kirsten, kona hans, taka á móti verðlaununum úr hendi Doru Dexler, forseta IFOAM, við hátíðlega athöfn.
Mynd / Aðsend
Utan úr heimi 16. október 2026

Danskur svínabóndi verðlaunaður

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Ein af verðlaunum Evrópusambandsins í lífrænni framleiðslu, EU Organic Awards, féllu í skaut dansks svínabónda, Hans Erik Jørgensen á Risbjerg Landbrug.

Hans Erik, sem einnig er formaður lífrænna landbúnaðargreina í dönsku bændasamtökunum, segir dýravelferð mikilvæga og neytendur framtíðarinnar vilja lífrænt vottaðar vörur. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Brussel í lok september. Markmið þeirra er að veita viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í allri virðiskeðju lífrænna afurða.

Neytendur framtíðarinnar vilja lífrænt

„Reglur Evrópusambandsins í lífrænni ræktun eru okkur mikilvægar,“ segir Hans Erik. Þær tryggi neytendum að samræmi sé á milli landa. Í viðtali um verðlaunin sagðist hann stoltur af verðlaununum, þau séu klapp á öxlina.

Á Risbjerg, sem Hans Erik rekur ásamt eiginkonu sinni, Kirsten Rasmussen, eru árlega framleiddir 6.000 sláturgrísir á 350 hekturum beitarlands. Þar eru einnig nautgripir og hænsni. Þau hjón vinna með skiptiræktun eins og skylt er í lífrænum landbúnaði og beitarstýringu. Þau huga einnig sérstaklega að kolefnisbindingu, með vali á jurtum sem hafa djúpar rætur.

„Ég er viss um að lífrænn landbúnaður er framtíð landbúnaðarins,“ segir Hans Erik. „Við hugsum um náttúruna og dýrin og neytendur framtíðarinnar munu vilja það.“

Dýravelferð mikilvæg

„Dýravelferð er mikilvæg fyrir okkur,“ segir Hans Erik í viðtali um verðlaunin, en valið vekur sérstaka athygli sökum mikillar umræðu í Danmörku að undanförnu um dýravelferð á svínabúum.

Hans Erik segir neytendur þekkja Evrópulaufið, lífræna vottunarmerkið, en þekking þeirra sé takmörkuð á muninum á hefðbundnum og lífrænum landbúnaði, hvað varðar grunngildin um dýravelferð, líffræðilegan fjölbreytileika, heilsu og umhverfislega sjálfbærni.

Besti kvenbóndinn írskur

Kay O´Sullivan var valin besti kvenbóndinn. Hún er fimmta kynslóð bænda á Glynn Organic-býlinu sem er nálægt Cork. Þar er stunduð sauðfjár- og nautgriparæktun. Býlið er algerlega sjálfbært um áburð og fóður og síðan lífrænn búskapur var þar tekinn upp hefur hagnaður aukist.

Aðrir verðlaunahafar eru Bio Bulgaria (Harmonica) sem hlutu verðlaun í flokki bestu matvælaframleiðslu, besti veitingastaðurinn er Zotter Schokolade í Austurríki, besti söluaðili Bosshammersch Hof í Þýskalandi, Cussac-Fort Médoc í Frakklandi var valin besta lífræna borgin og Distretto Sardegna Bio á Ítalíu besta svæðið.

Til gamans má geta að Svíþjóð er í fararbroddi Norðurlandanna með hlutfallslega mest lífrænt vottað ræktunarland, eða 20%, Eistland er með 23% og Liechtenstein trónir á toppnum með 44,6%. Lífrænt vottað ræktunarland á Íslandi er nú um 1%. Markmið stjórnvalda er að tífalda hlutfallið fyrir árið 2040. Markmið Evrópusambandsins er að 25% landbúnaðarlands aðildarríkja verði lífrænt vottað árið 2030.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...