Samtals komu 160 lömb til dóms og margar fallegar lopapeysur voru sömuleiðis til sýnis á degi sauðkindarinnar.
Samtals komu 160 lömb til dóms og margar fallegar lopapeysur voru sömuleiðis til sýnis á degi sauðkindarinnar.
Líf og starf 30. október 2026

Dagur sauðkindarinnar

Höfundur: Hulda Brynjólfsdóttir

Dagur sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu fór fram 10. október síðastliðinn. Fjöldi fólks mætti á sýninguna og metfjöldi lamba mætti til dóms.

Dæmt er í fjórum flokkum, hyrndar gimbrar, hyrndir hrútar, kollóttar gimbrar og kollóttir hrútar. Samtals komu 64 hrútar til sýningarinnar og 96 gimbrar og hafa lömbin ekki áður verið fleiri á þessari sýngingu.

Áhorfendur velja litfegursta lamb sýningarinnar, veitt eru verðlaun fyrir þykkasta bakvöðvann í ómmælingum og fær eigandi þess lambs lambalæri í vinning.

Þá eru veitt verðlaun fyrir bestu fimm vetra á ársins 2025 innan Rangárvallasýslu skv. upplýsingum frá RML, besta veturgamla hrút ársins 2025 og ræktunarbú þess sama árs.

Verðlaunagripirnir eru bæði farandgripir og til eignar. Flestir eru handmálaðir plattar af Gunnhildi Jónsdóttur ,listakonu okkar frá Berjanesi. En einnig er veittur farandbikar fyrir ræktunarbúið.

Fjölmargir aðilar styrktu hátíðina og þökkum við þeim kærlega fyrir stuðninginn. Eins þökkum við öllum þeim sem komu að hátíðinni í sjálfboðavinnu og ekki síst þeim sem komu með lömb til dóms kærlega fyrir daginn og ánægjulega samverustund.

Hulda Brynjólfsdóttir

Smáspunaverksmiðjan Uppspuni / Sveitakarlinn ehf.

Hjalti og Sigurbjörg sem kenna féð sitt við Hreiður, tóku við verðlaunum fyrir bestu fimm vetra á árinu 2025 í Rangár- vallasýslu skv. Blup-mati RML. Óskírður erfingi þeirra fékk að koma með í sína fyrstu verðlaunaafhendingu.
Litfegursta lambið kom frá Skíðbakka 1 og komu Alexandra og Birna að taka við verðlaununum.
Albert tók við verðlaunum fyrir besta veturgamla hrút ársins 2025 skv. Blup-mati RML, en hann er frá Skíðbakka , en var keyptur sem lamb frá Hreiðri. Til gamans má geta þess að þessi hrútur sem heitir Darvin er sonur bestu fimm vetra ærinnar sem fékk verðlaun fyrir árið 2025.
Mikið af ungu fólki tók þátt í að sýna lömbin og hér eru bræður frá Teigi í Fljótshlíð með tvær gimbrar ofarlega í röðun.
Það var í nógu að snúast hjá starfsfólki sýningarinnar og dómurunum sem komu frá RML, feðgarnir Pétur og Sigurður Anton.
Aron á Efri-Rauðalæk raðaði inn verðlaunum, en hann sýndi efsta lambið í þremur f lokkum. Hér er hann með bestu hyrndu gimbrina og við hlið hans er Garðar í Hólmi með barnabörnin og var sú gimbur annað tveggja lamba sem mældist með 41 mm bakvöðva og fékk verðlaun fyrir þykkasta bakvöðva sýningarinnar. Í þriðja sæti er Sigríkur á Syðri-Úlfsstöðum.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...