Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, og Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra.
Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, og Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra.
Mynd / Aðsend
Fréttir 4. júní 2026

Búvörusamningar framlengdir um eitt ár

Höfundur: Þröstur Helgason

Búvörusamningar hafa verið framlengdir um eitt ár en þeir hefðu annars runnið út í lok þessa árs. Heildarframlög til landbúnaðarins verða þau sömu á næsta ári og þau voru í ár en hluti þeirra rennur í sérstakan stuðning við fjárfestingar og nýliðun í greininni.

Samkomulag Bændasamtaka Íslands, atvinnuvegaráðuneytis og fjármálaráðuneytis þessa efnis var undirritað í dag. Tíminn verður nýttur í viðræður um framtíðarskilyrði landbúnaðarins.

Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, segist fagna því að vinnan við mótun starfsskilyrða bænda og landbúnaðarins sé komin á þetta stig en það hafi legið fyrir lengi að búvörusamningar yrðu framlengdir enda vilji beggja aðila staðið til þess. „Nú getum við hafist handa við samningaborðið og ég geri ráð fyrir að nýir samningar muni renna styrkari stoðum undir íslenskan landbúnað og skapa forsendur fyrir frekari framförum og verðmætasköpun í greininni,“ segir Trausti í fréttatilkynningu frá Bændasamtökunum.

200 milljóna króna svigrúm

Í frétt á vef atvinnuvegaráðuneytisins segir að samningarnir verði að mestu óbreyttir, að því frátöldu að fallið var frá því að draga árleg framlög saman um 1% á árinu 2027, eins og gert var árin 2022-2026.  „Það svigrúm sem skapast með því, tæpar 200 milljónir króna, verður nýtt til að auka framlög til nýliðunarstuðnings í landbúnaði og til fjárfestingastuðnings í nautgripa- og sauðfjárrækt.“ 

Nýr samningur tekur við í ársbyrjun 2028 og segir í fréttinni að undirbúningur þeirra hafi staðið um nokkurt skeið. „Af hálfu stjórnvalda verður þar einkum tekið mið af þeim áherslum sem finna má í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, landbúnaðarstefnu sem Alþingi samþykkti 2023 og áunninni reynslu af núverandi kerfi. Samhliða samkomulaginu var jafnframt undirrituð viðræðuáætlun til að ramma verkefnið frekar inn. Hún var undirrituð af Jarþrúði Ásmundsdóttur sem leiðir viðræðurnar fyrir hönd stjórnvalda og Trausta Hjálmarssyni, formanni Bændasamtaka Íslands.“  

Skylt efni: búvörusamningar

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.