Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Núverandi og fyrrverandi ráðherrar landbúnaðarmála ásamt forseta Íslands, forsætisráðherra og formanni Bændasamtaka Íslands við lok setningar Búnaðarþings 2021 í Súlnasal Hótel Sögu. Að sjálfsögðu voru þau öll með grímur vegna COVID-19 faraldursins og voru leyst út með glænýju Tímariti Bændablaðsins, sem gefið var út í tengslum við Búnaðarþingið. Talið frá vinstri: Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra og Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Núverandi og fyrrverandi ráðherrar landbúnaðarmála ásamt forseta Íslands, forsætisráðherra og formanni Bændasamtaka Íslands við lok setningar Búnaðarþings 2021 í Súlnasal Hótel Sögu. Að sjálfsögðu voru þau öll með grímur vegna COVID-19 faraldursins og voru leyst út með glænýju Tímariti Bændablaðsins, sem gefið var út í tengslum við Búnaðarþingið. Talið frá vinstri: Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra og Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Mynd / HKr
Fréttir 25. mars 2021

Búnaðarþing samþykkti einróma innleiðingu á nýju félagskerfi Bændasamtaka Íslands

Höfundur: Vilmundur Hansen

Á Búnaðarþingi 2021 var einróma samþykkt að breyta félagskerfi landbúnaðarins með þeim hætti að Bændasamtök Íslands (BÍ) og búgreinafélögin sameinast undir merkjum BÍ í deildaskiptu félagi. Málið var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.

Verði þessi niðurstaða samþykkt úti í félögunum munu búnaðarsamböndin verða aðildarfélög BÍ með skilgreind hlutverk og BÍ byggð upp af deildum búgreina. Þrjú aðildarfélög; VOR, Beint frá býli og Samtök ungra bænda, munu starfa þvert á búgreinar.

Markmiðið með breytingunum er að ná aukinni skilvirkni í félagskerfinu og eflingu hagsmuna­gæslu í landbúnaði.

Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, segir að breytingarnar og væntanleg sam­eining geri Bændasamtökunum kleift að ná fram breytingum á starfseminni og hagræðingu sem geri samtökin sterkari og um leið öflugri hagsmunasamtök.

„Ég tel fulla ástæðu til að óska bændum til hamingju með sam­þykktina og ég er samfærður um að breytingin eigi eftir að vera allri bændastéttinni til hagsbóta. Það var gerður góður rómur að tillögunni og hún var samþykkt til afgreiðslu til búgreinafélaganna einróma. Nú fer tillagan áfram til samþykktar hjá félögunum og í framhaldi af því verður haldið aukabúnaðarþing 10. júní þar sem nýjar samþykktir verða samþykktar á grundvelli staðfestingar allra búgreinafélaganna á breytingunum.“ Gunnar segir að sú samþykkt sé í raun formsatriði.

Breytingarnar taka gildi 1. júlí

„Tillagan sem afgreidd var á Bún­aðar­þingi fer í framhaldinu til afgreiðslu búgreinafélaganna óbreytt og það er ekki hægt að breyta henni í meðförum þeirra. Félögin verða því að breyta sínum lögum í samræmi við tillöguna og samþykkja hana á aukabúnaðarþingi. Breytingarnar taka svo gildi 1. júlí næstkomandi.“

Nýtt skipurit BÍ

Að sögn Gunnars er búið að leggja mikla vinnu í tillöguna og búið að halda marga fundi til að koma henni saman til samþykktar.

„Á sama tíma er það búið að vera skemmtilegt starf, þrátt fyrir að það hefði verið enn skemmtilegra að gera það maður á mann í stað þess að hitta fólk á skjánum þótt það hafi tekist vel. Ég tel einnig að það hafi tekist vel með streymið af þinginu til bænda úti um allt land og áhorfið var mikið. Næsta skref okkar á skrifstofu Bændasamtakanna er að teikna upp skipurit samtakanna eins og það kemur til með að líta út eftir að breytingarnar taka gildi. Þar á ég við starfsmannahald og hver kemur til með að gera hvað og hvert sé ábyrgðarsvið hvers og eins,“ segir Gunnar Þorgeirsson.

Skylt efni: búnaðarþimg 2021

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f