Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Bygging skammt frá Wilder í Idaho. Bændurnir þar reiða sig mikið á erlenda verkamenn.
Bygging skammt frá Wilder í Idaho. Bændurnir þar reiða sig mikið á erlenda verkamenn.
Mynd / Ian Poellet
Utan úr heimi 23. febrúar 2026

Brottflutningur innflytjenda skaðar bændasamfélag

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Í október gerðu fulltrúar innflytjendaeftirlits Bandaríkjanna atlögu að Wilder í Idaho, sem er afskekkt landbúnaðarhérað sem reiðir sig á erlent vinnuafl.

Harðar aðgerðir stjórnvalda koma heimamönnum á óvart, enda kusu 91 prósent íbúa Wilder Donald Trump til forseta í kosningunum 2024. Undanfarið hefur forsetinn gripið til harðra aðgerða gegn innflytjendum í borgum eins og Minneapolis, Chicago og Los Angeles, þar sem stuðningsmenn Demókrata eru í meirihluta. Frá þessu er greint á vef New York Times.

Á samkomu í október á veðhlaupahring í Wilder, sem sótt var af fólki sem á uppruna sinn að rekja til Rómönsku Ameríku, var nokkur hundruð manns smalað saman. Aðeins fjórir hafa verið ákærðir vegna ólöglegrar veðmálastarfsemi, en 105 einstaklingar voru teknir í varðhald vegna gruns um að vera ólöglegir innflytjendur. 75 hafa verið sendir úr landi. Alríkisstjórnin hefur verið ásökuð um að nota baráttu gegn ólöglegum veðmálum sem yfirvarp til að beita hörðum aðgerðum gegn innflytjendum. Í aðgerðum stjórnvalda voru viðstaddir ekki spurðir út í hvort þeir hefðu verið vitni að veðmálastarfsemi, heldur hvar þeir væru fæddir.

Í Wilder búa 1.725 manns og segja íbúar aðgerðir stjórnvalda valda ótta og óöryggi. Varað er við neikvæðum áhrifum þegar kemur að vorverkum á bújörðum í vor. Byggðin var sett á fót af bændum snemma á tuttugustu öldinni. Til að byrja með var þar mikið af farandverkamönnum frá Mexíkó sem unnu árstíðarbundin störf, en með tíð og tíma hefur það þróast yfir í varanlega búsetu. Í bænum er stórt samfélag íbúa með uppruna frá Rómönsku Ameríku, ýmist með ríkisborgararétt, dvalarleyfi eða óskráðir og stór hluti starfar fyrir bændur á svæðinu í kring.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.