Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Bróðurpartur af kornuppskeru sumarsins er ónýtur
Mynd / GHG
Fréttir 24. september 2015

Bróðurpartur af kornuppskeru sumarsins er ónýtur

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Bróðurpartur af allri kornuppskeru í Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu fór forgörðum á einni frostnótt í lok ágúst. Um er að ræða gríðarlegt tjón fyrir bændur og  hleypur það á tugum milljóna króna.
 
 
Guðmundur H. Gunnarsson.
Guðmundur H. Gunnarsson, starfsmaður Búnaðar­sambands Eyjafjarðar og ráðgjafi í jarðrækt hjá RML, segir að aðfaranótt 30. ágúst síðastliðinn hafi svellköld frostnótt lagt stóran hluta af korni á ökrum bæði í Eyjafirði og S-Þingeyjarsýslu að velli. Frost mældist þessa nótt -3,9 gráður á Möðruvöllum í Hörgárdal og á annarri veðurathugunarstöð í Eyjafirði, Torfum í Eyjafjarðarsveit, mældist það -4,5 gráður.  Frost var í allmarga klukkutíma, frá því fyrir miðnætti og allt fram til morguns.
 
Seinna sáð en í meðalári
 
Guðmundur segir að vorið hafi verið bændum erfitt, kalt var í veðri og snjókoma í lok apríl bleytti akra sem þá voru að verða tilbúnir til jarðvinnslu. Það varð til þess að sáning fór víðast hvar ekki fram fyrr en um eða upp úr miðjum maí, en á síðustu árum hefur oft verið hægt að byrja að sá korni hér norðan heiða seinni partinn í apríl.
 
„Þetta var um hálfum mánuði og allt upp í þremur vikum seinna en vant er.  Við tók svo óvenju kalt sumar, júní og júlí voru sérlega kaldir og seinkaði það verulega skriði kornsins þótt akrarnir litu að öðru leyti vel út þrátt fyrir kalt vor og sumar, því víðast hvar var vandað til verka en margir kornbændur á svæðinu sóttu námskeið í kornrækt síðastliðinn vetur,“ segir Guðmundur.
 
Meðalhiti í Eyjafirði var töluvert undir meðallagi þessa sumarmánuði, í júní og júlí. Sem dæmi má nefna að meðalhiti var 8,4 gráður á Möðruvöllum í Hörgárdal í júlí og 8,7 gráður á Torfum í Eyjafjarðarsveit.
„Það er nálægt því að vera um 2–3 gráðum undir meðaltali síðustu ára og hafði vissulega áhrif á þroska kornsins, sem varð hægari fyrir vikið,“ segir hann. Kornið var því víða skammt á veg komið í þroska þegar frostnóttin umrædda helltist yfir í lok ágúst.
 
Gremjulegt því útlit var fyrir þokkalega uppskeru
 
„Upp úr miðjum ágúst fór veðrið að skána verulega norðan heiða og útlitið var alls ekki slæmt. Margir akranna voru fallegir þrátt fyrir kalt sumar og uppskera hefði orðið þokkaleg því haustið hefur verið ágætt, fínasta veður í september. Vöxturinn hefði því tekið vel við sér og uppskera held ég að hefði síst orðið mikið minni nú í ár en var í fyrra,“ segir Guðmundur.
 
Hann telur að þar sem seint var sáð og kalt var fyrri hluta sumars hafi kornið ekki staðið af sér áfallið í kjölfar frostnæturinnar.  Korn þoli að jafnaði eina og eina frostnótt, en þá þurfi vöxtur að vera lengra kominn en raunin var. 
 
„Kornið þolir ekki frostið þegar það er þetta skammt á veg komið í þroska. Það fór því sem fór og er verulega gremjulegt. Eftir sitja bændur með sárt ennið og gríðarlegt tjón,“ segir Guðmundur.
 
Meðaluppskera í fyrra um 4–5 tonn á ha
 
Í fyrrasumar var korn ræktað á um 460 ha lands í Eyjafirði og S-Þingeyjarsýslu en Guðmundur telur að heldur minna land hafi verið nýtt undir kornrækt nú á liðnu sumri vegna þess hve seint voraði.  Uppskera í fyrra var að meðaltali um 4–5 tonn á ha. Um 40 krónur fengust fyrir kílóið í fyrrahaust.  
 
„Jarðabótaúttekt fer fram þessa dagana, því verki er ekki lokið, en það er alveg ljóst að um heilmikið tjón er að ræða, það nemur einhverjum tugum milljóna,“ segir Guðmundur.
 
Einnig má geta þess að nokkrir akrar á svæðinu skemmdust af völdum sveppasmits sem upp kom á ökrunum. Slíkt smit nær meiri útbreiðslu á köldu og blautu sumri. 
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.