Borg grámans
Mynd / Úr safni
Leiðari 30. apríl 2026

Borg grámans

Höfundur: Þröstur Helgason

Reykjavíkurborg krefst þess að Gróðrarstöðin Mörk í Stjörnugróf fari af hluta lóðar sinnar í lok þessa árs og árið 2032 og víki alfarið af lóðinni 2040. Borgin hefur nefnilega tekið ákvörðun um að Knattspyrnufélagið Víkingur fái lóðina til frekari uppbyggingar á starfsemi sinni. Ætlar Víkingur að byrja á því að malbika fleiri bílastæði á lóðinni sem þeim hlotnast, ef marka má ummæli framkvæmdastjóra félagsins.

Guðmundur Vernharðsson, eigandi Markar, segir að þetta muni marka endalok gróðrarstöðvarinnar. Borgin hafi ekki boðið aðra lóð undir starfsemina og fyrirtækið hafi ekki tök á að kaupa lóð á samkeppnismarkaði. Afar kostnaðarsamt sé auk þess að flytja starfsemina enda búi áratuga langt ræktunarstarf að baki í Stjörnugróf.

Saga þessa máls er satt að segja kostuleg en hana rekur Guðmundur í nýjasta þætti Útvarps Bændablaðsins og í blaðinu í dag. Upphafið má rekja til þess að árið 2008 mætir þáverandi borgarstjóri, Ólafur F. Magnússon, í hundrað ára afmæli Víkings og lofar því að knattspyrnufélagið fái lóð undir frekari uppbyggingu í Fossvogsdalnum. Í júlí það ár leggur Ólafur tillögu fyrir borgarráð þess efnis að Víkingur fái lóð Gróðrarstöðvarinnar Markar eftir að leigusamningur hennar við borgina rennur út árið 2016. Borgarráð samþykkti tillöguna.

Ekkert samráð var haft við eigendur Markar, Guðmund og eiginkonu hans, um þeirra hagsmuni en þó var hringt kvöldið áður en tillagan var lögð fram til þess að kynna þeim hvað stæði til. Þau fengu hins vegar ekki tækifæri til þess að lýsa sínum hagsmunum og augljóst að ekki var tekið tillit til þeirra við ákvörðunina.

Gróðrarstöðin Mörk hefur staðið samningslaus á lóðinni frá árinu 2016. Viðræður hófust um fullnustu ákvörðunar borgarráðs árið 2018. Eigendur Markar hafa þar átt við teymi embættismanna og lögfræðinga borgarinnar og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur þeim, að sögn Guðmundar, enn ekki tekist að fá fund með kjörnum fulltrúa eða borgarstjóra. Málið stendur þannig núna að Mörk ber að víkja af lóðinni í áföngum eins og sagði hér að framan.

Gróðrarstöðin Mörk hefur starfað í Stjörnugróf í tæp sextíu ár, eða frá 1967. Þar hefur verið ræktaður upp jarðvegur til þess að græða í trjágróður, blóm og matjurtir sem henta íslenskum aðstæðum sérstaklega. Mörk er eina einkarekna gróðrarstöðin sem enn starfar innan borgarmarkanna en Reykjavíkurborg rekur sína eigin gróðrarstöð í hinum enda Fossvogsdalsins. Almenningur í Reykjavík hefur átt í viðskiptum við Mörk en stærstu viðskiptavinirnir eru verktakar sem vinna að því að fegra borgina með gróðri og svo auðvitað borgin sjálf.

Gróðrarstöðin Mörk er græn starfsemi sem halda mætti að Reykjavíkurborg hefði áhuga á að halda innan sinna marka. Spyrja má hvernig brotthvarf Markar úr borgarlandinu fellur að stefnu Reykjavíkurborgar um sjálfbæra þróun, uppbyggingu grænna svæða, trjárækt og vistvænt borgarumhverfi til framtíðar.

Tillaga Ólafs F. Magnússonar var vanhugsuð og samþykkt þáverandi borgarráðs sömuleiðis. En spurningar hljóta líka að vakna um meðferð málsins hjá seinni tíma borgarstjórum og meirihlutum. Svo virðist sem ekki hafi verið skoðað að finna aðra lausn á málinu en að reka Mörk af lóðinni í Stjörnugróf. Mörk hefur ekki verið boðin önnur lóð innan borgarmarkanna. Ekkert virðist hafa verið hugað að hagsmunum gróðrarstöðvarinnar í öllu ferlinu sem staðið hefur í tæpa tvo áratugi. Skortur á samráði lýsir yfirgangi og skorti á vilja til að hugsa í lausnum. Auðvitað lýsir hún líka skorti á almennri kurteisi. Varla er hægt að draga aðra ályktun en þá að Reykjavíkurborg sé fullkomlega sátt við það að græn starfsemi af þessu tagi, sú síðasta sinnar tegundar í borginni, muni leggjast af. Reykjavík er borg grámans. Þröstur Helgason

Skylt efni: Leiðari

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...