Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Staðsetning borholunnar í Reykholti er merkt á kortið með rauðum punkti.
Staðsetning borholunnar í Reykholti er merkt á kortið með rauðum punkti.
Mynd / Aðsendar
Fréttir 4. febrúar 2025

Borað eftir heitu vatni

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Á vegum sveitarfélagsins Bláskógabyggðar er nú borað eftir heitu vatni í Reykholti.

Helgi Kjartansson.

Að sögn Helga Kjartanssonar, oddvita sveitarstjórnar, hefur mikil uppbygging átt sér stað í Reykholti á undanförnum árum á öllum sviðum; bæði hjá ylræktarbændum og á íbúðarhúsnæði.

Uppbygging sem kallar á meiri heitavatnsnotkun

Helgi segir að öll þessi uppbygging hafi kallað á meiri notkun á heitu vatni. „Til að enn frekari uppbygging geti átt sér stað var nauðsynlegt að fara í heitavatnsöflun. Þessa dagana er Ræktunarsamband Flóa og Skeiða að bora eftir heitu vatni í Reykholti, að undangenginni ákveðinni undirbúningsvinnu.

Við fengum Ísor í ráðgjöf með okkur til að kortleggja svæðið í Reykholti. Í framhaldi af tilraunaholum sem boraðar voru var vinnsluhola staðsett. Við gerum okkur vonir um að fá nægjanlegt af heitu vatni til að geta styrkt okkar kerfi enn frekar. En eins og við vitum er alltaf einhver óvissa þegar farið er í slíka leit. Við værum í ágætis málum ef við fengjum um 33 sekúndulítra.“

Hvatning til stækkunar á ylræktarstöðvum

Ef vel tekst til er talið að garðyrkjubændur geti farið að huga að frekari stækkunum á sínum stöðvum. „Garðyrkjan hefur eflst mjög mikið, þar sem gróðurhús á mörg þúsund fermetrum hafa verið byggð á árunum um og eftir Covid. Öll uppbyggingin í garðyrkjunni hefur verið unnin af mikill fagmennsku þar sem nýtísku gróðurhús hafa verið byggð til ræktunar á tómötum, gúrkum, jarðarberjum, afskornum blómum og garðplöntum,“ heldur Helgi áfram.

„Þá var hótel með 44 herbergjum tekið í notkun árið 2021 og stefnt er á enn frekari stækkun á næstu tveimur árum. Mikil uppbygging á íbúðarhúsnæði hefur einnig átt sér stað í Reykholti á síðustu árum, en á árunum 2020 til 2024 hefur lóðum fyrir um 100 íbúðum verið úthlutað. Verkalýðsfélagið Efling hefur einnig byggt 12 orlofsíbúðir í Reykholti sem eru í mikilli og góðri notkun. Með allri þessari uppbyggingu hefur íbúum fjölgað í Reykholti um 56 prósent á árunum 2020–2024.“

Góð kjör á heitu vatni

Að sögn Helga hefur sveitarfélagið ekki lent í verulegum vandræðum með afhendingu á heita vatninu í kuldatíðinni. „Við höfum þó aðeins dregið niður í sundlauginni til öryggis,“ segir hann. Helgi hefur trú á því að garðyrkjan muni eflast enn frekar í Reykholti á komandi árum. „Það veltur að vísu á nokkrum þáttum, meðal annars á raforkuverðinu og hvaða stefnu stjórnvöld taka með fæðuöryggi þjóðarinnar. Við í sveitarstjórn teljum okkur styðja vel við garðyrkjuna með hagstæðum kjörum á heitu vatni, seljum sekúndulítrann á 38,3 krónur sem er örugglega með því hagstæðasta sem gerist á landinu. Enda hefur mikil uppbygging átt sér að stað í garðyrkju í Bláskógabyggð á undanförum árum.“

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.