Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Bleikjur í eldiskví.
Bleikjur í eldiskví.
Mynd / Úr safni
Fréttir 20. apríl 2026

Bleikjur struku

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Matvælastofnun var tilkynnt um strok bleikju úr eldisstöð Matorku ehf. að Húsatóftum við Grindavík laugardagsmorguninn 11. apríl.

Fiskurinn var um 600 grömm að meðalþyngd og telur fyrirtækið að um 500 fiskar hafi strokið. Rist á útfalli kers mun hafa gefið sig vegna tæringar með þeim afleiðingum að fiskur komst með útfalli í sjó fram. Viðgerð var framkvæmd strax og gerðar ráðstafanir til þess að skoða ástand annarra kerja ásamt því sem viðbragðsáætlun vegna stroks var virkjuð.

Fulltrúar Matorku telja ekki miklar líkur á að bleikjan sem strauk geti lifað í fullsöltum sjó. Matvælastofnun vinnur að rannsókn málsins og mun gefa út eftirlitsskýrslu þegar rannsókn er lokið. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Matvælastofnun.

Skylt efni: Matvælastofnun | bleikja

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.