Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði
Fréttir 10. nóvember 2026

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– Hvernig má tífalda framleiðsluna á Íslandi?

Fagráð í lífrænum landbúnaði stendur fyrir málþinginu „Tíföldum lífræna framleiðslu – blásið til sóknar“ í Kaldalóni í Hörpu fimmtudaginn 19. nóvember, frá klukkan 10–15.30.

Elínborg Erla Ásgeirsdóttir.

Daninn Paul Holmbeck verður sérstakur gestur málþingsins, en hann er alþjóðlegur ráðgjafi í stefnumótun og markaðsuppbyggingu fyrir lífrænan landbúnað, var um árabil framkvæmdastjóri Organic Denmark, Økologisk Landsforening og átti mikilvægan þátt í uppbyggingu og velgengni lífræna geirans í Danmörku.

Elínborg Erla Ásgeirsdóttir, formaður VOR – félags um lífræna ræktun og framleiðslu, segir að þau séu sérstaklega ánægð með komu Paul Holmbeck til landsins. „Hann situr í stjórn IFOAM – Organics International, alþjóðlegra regnhlífarsamtaka lífrænu hreyfingarinnar. Hann hefur því einnig víðtæka yfirsýn yfir þróun lífræns landbúnaðar á alþjóðavísu.“

Danir með einn öflugasta markað heims

Að sögn Elínborgar hefur Holmbeck bæði reynslu í stefnumótun og framkvæmd og hefur meðal annars komið að mótun aðgerðaáætlana um lífræna framleiðslu, unnið að uppbyggingu samstarfs við verslanir og því að auka notkun lífrænna matvæla í opinberum eldhúsum. Í dag starfi hann sem ráðgjafi stjórnvalda, fyrirtækja og samtaka víða um heim um hvernig megi efla lífræna framleiðslu.

„Það sem gerir heimsókn hans sérstaklega áhugaverða er þessi víðtæka reynsla hans af því að fá ólíka aðila til að vinna að sameiginlegum markmiðum. Danir hafa byggt upp einn öflugasta markað heims fyrir lífrænar vörur og við viljum læra af þeirra reynslu og reyna að koma auga á hvaða verkfæri er hægt að nýta við íslenskar aðstæður.“

Elínborg segir að málþingið snúist í raun um þá spurningu, hvernig megi tífalda lífræna framleiðslu á Íslandi og hver þarf að gera hvað til þess að það geti orðið að veruleika. „Við vonumst til að koma auga á lausnir sem geta fært okkur nær því að ná markmiðum aðgerðaáætlunar stjórnvalda, að 10% landbúnaðarlands verði vottað lífrænt árið 2040.“

Aðgerðaáætlun um eflingu lífrænnar framleiðslu

Elínborg segir að Paul muni hefja daginn á erindi um uppbyggingu öflugs lífræns geira. Í kjölfarið verði fjallað um stuðningskerfi og starfsskilyrði lífrænna framleiðenda með aðkomu Bændasamtaka Íslands, Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins og Landbúnaðarháskóla Íslands. Eftir hádegi verði fjallað um aðgerðaáætlun um eflingu lífrænnar framleiðslu, reynslu framleiðanda og hlutverk verslunar.

„Pallborðsumræður munu síðan brjóta daginn upp og gefa áheyrendum færi á að koma spurningum og sinni innsýn á framfæri.

Að þeim loknum mun Paul draga saman það sem fram hefur komið yfir daginn. Við viljum þannig freista þess að nýta þekkingu hans til að vinna áfram með þær hugmyndir og áskoranir sem koma upp á málþinginu.

Mér finnst mikilvægt að við horfum á eflingu lífrænnar framleiðslu sem sameiginlegt verkefni. Bændur þurfa að hafa aðgang að þekkingu og ráðgjöf, starfsskilyrðin þurfa að styðja við þróunina og afurðirnar þurfa að komast á markað. Með málþinginu viljum við leiða þessa aðila saman og blása til sóknar,“ segir Elínborg enn fremur.

Fundarstjóri verður Salvör Jónsdóttir, skipulagsfræðingur og stjórnarformaður Matís.

Málþingið er haldið með stuðningi atvinnuvegaráðuneytisins og því verður einnig streymt. 

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...