Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Bílaframleiðendur kaupa nú þvottavélar í stórum stíl til að næla sér í tölvustýringar sem nauðsynlegar eru í bílana. Búist er við að skortur á hálfleiðurum og tölvustýringum verði viðvarandi út þetta ár að minnsta kosti, með tilheyrandi áhrifum á framleiðslu bíla, tölva og ýmiss konar tæknibúnaðar.
Bílaframleiðendur kaupa nú þvottavélar í stórum stíl til að næla sér í tölvustýringar sem nauðsynlegar eru í bílana. Búist er við að skortur á hálfleiðurum og tölvustýringum verði viðvarandi út þetta ár að minnsta kosti, með tilheyrandi áhrifum á framleiðslu bíla, tölva og ýmiss konar tæknibúnaðar.
Fréttir 3. maí 2022

Bílaframleiðendur kaupa þvottavélar í stórum stíl til að fá íhluti í nýja bíla

Höfundur: Hörður Kristjánsson

Bílaframleiðendur og framleið­endur margvíslegra iðnaðartækja hafa verið að kaupa nýjar og not­aðar þvottavélar í stórum stíl að undanförnu. Ástæðan er skortur á tölvustýringum og hálfleiðurum sem notaðir eru í bíla.

Verulega fór að bera á þessum skorti í Covid-19 faraldrinum á árunum 2020–2021. Þá lamaðist starfsemi fjölmargra íhluta­fram­leiðenda vegna veikinda starfsfólks. Erfiðlega gekk því að ljúka smíði bíla og fleiri tækja sem eru orðin mjög tölvuvædd. Staðan versnaði svo enn frekar þegar Rússar hófu innrás í Úkraínu, en þar voru m.a. framleiddir margvíslegir íhlutir fyrir iðnaðinn. Þá hefur viðskiptabann á Rússa ekki bætt úr skák en þeir eru næstöflugustu framleiðendur á platínu sem notuð er í hálfleiðara í raftækjum. Þetta hefur leitt til þess að stórframleiðendur á tölvukubbum, m.a. í Bandaríkjunum og víðar, hafa átt í miklum erfiðleikum með að standa við skuldbindingar sínar.

Þetta hefur haft mikil áhrif á bílaframleiðendur eins og Tesla, Toyota, Ford, Volkswagen, Audi og fleiri sem hafa þurft að draga úr bílaframleiðslu sinni. Sem dæmi hefur Toyota dregið úr sinni framleiðslu sem nemur 100.000 bílum á ári.

Hefur sala fólksbíla dregist saman af þessum sökum víða um heim og var um 40% minni í Evrópu í mars síðastliðinn en var áður en heimsfaraldurinn hófst. Þrátt fyrir mikla eftirspurn og fyrirliggjandi pantanir á ökutækjum er búist við að framleiðsla bíla í Evrópu dragist saman um 20% til viðbótar vegna skorts á íhlutum, samkvæmt heimildum ACEA data. Sem dæmi um þróunina, þá herma óstaðfestar fréttir að bíla­fram­leiðandinn Audi hafi keypt 4.000 þvottavélar fyrir skömmu til að ná sér í tölvustýringar sem nota má í bíla. Stýringarnar eru m.a. notaðar í eldsneytiskerfi hefðbundinna bensín- og dísilbíla og í orkustýringar í rafbílum. Stórir framleiðendur hálfleiðara, m.a. í Taívan og Kína hafa reynt að auka framleiðslu en t.d. ASML Holding NV í Kína er nú komið með pantanir fyrir allri sinni framleiðslugetu á árinu 2023.

Hálfleiðaraframleiðandinn Manu­­facturing Co. í Taívan, sem er stærsta fyrirtæki heims á þessu sviði, kynnti á dögunum að framleiðslan væri í járnum og yrði erfið út árið 2022. Í Kína glíma framleiðendur auk þess við skort á mannafli vegna mikillar tíðni Covid-smita.

Þessi skortur á örgjörvum kemur ekki bara niður á bíla­fram­leiðendum, því tölvuframleiðendur eru ekki síður í vanda vegna þessa. Þannig tefur þetta mjög fyrir framleiðslu á fartölvum, far­símum, myndavélum og fleiru.

Spyrja má hvort notkun íhluta úr þvottavélum leiði til þess að bílar eins og Audi, Toyota eða Tesla fái undirnöfn eins og Turbo Washing Machine eða eitthvað álíka.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.