Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Baldur og Herjólfur sigla til og frá Vestmannaeyjum
Fréttir 3. júní 2026

Baldur og Herjólfur sigla til og frá Vestmannaeyjum

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Ferjurnar Baldur og Herjólfur munu sigla til og frá Vestmannaeyjum frá 8. júní næstkomandi. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynnti þessar breytingar á íbúafundi sem Vegagerðin hélt í Vestmannaeyjum í gær. Samráð hefur verið haft við heimamenn í Eyjum og í Breiðafirði vegna þessara breytinga sem eru til komnar vegna vélarbilunar Herjólfs.

Vélabilun varð í annarri vél Herjólfs í apríl og vélin send úr landi til viðgerðar. Gert er ráð fyrir að viðgerð á vélinni ljúki upp úr miðjum júní. Miklar raskanir hafa orðið á ferðum Herjólfs síðan vélabilunin varð. Þegar Herjólfur siglir aðeins á einni vél getur skipið illa siglt til Landeyjahafnar ef ölduhæð fer yfir 2 m eða ef vindur er yfir 12 m/s.

Á næstu vikum verða miklar annir á siglingarleið Herjólfs og flutningar á fólki og faratækjum miklir, meðal annars vegna íþróttaviðburða um helgar. 

Ferjan Særún mun sinna siglingum til Flateyjar á Breiðafirði í fjarveru Baldurs og tryggja þjónustu við samfélagið þar. 

Skylt efni: herjólfur | Baldur | vestmannaeyjar

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f