Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Bætur vegna riðu sem kom upp á fimm bæjum í Skagafirði í haust gætu numið allt að 200 milljónum króna.
Bætur vegna riðu sem kom upp á fimm bæjum í Skagafirði í haust gætu numið allt að 200 milljónum króna.
Fréttir 8. desember 2020

Bætur vegna riðu umfram fjárveitingu

Höfundur: Vilmundur Hansen

Bætur vegna riðu sem kom upp á fimm bæjum í Skagafirði í haust gætu numið allt að 200 milljónum króna. Þetta kom fram í svari sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Höllu Signýjar Kristjánsdóttur, þingmanns framsóknarflokksins.

Í svari ráðherra segir að frummat hafi farið fram á áætluðum kostnaði vegna bóta vegna riðuveiki í Skagafirði. „Er áætlað að heildarbætur muni nema um 200 milljónir króna sem fyrirhugað er að verði mætt með sérstöku viðbótarframlagi úr ríkissjóði. Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2021 er gert ráð fyrir 123,3 milljón króna fjárveitingu til málaflokksins, eða um það bil 50 milljónir króna í hækkun frá fjárlögum 2020. Miðað við framangreint kann þó að verða nauðsynlegt að endurskoða þá fjárhæð þegar fyrir liggur hvernig bótagreiðslur munu skiptast milli ára.“
 

Í svarinu kemur fram að bætur vegna riðuveiki í Skagafirði hafa ekki enn verið greiddar, en það standi yfir vinna við að reikna þær út.

 

Áætlun vegna urðunar

Einnig var spurt hvort gerð hafi verið áætlun um mögulega urðunarstaði vegna urðunar á fé sem skorið er vegna bráðsmitandi búfjársjúkdóma?
    

Í svari ráðherra segir að ákvæði reglugerðar nr. 674/2017, um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis, gildi um förgun á úrgangi fjár sem skorið er niður vegna riðuveiki. „Með reglugerðinni eru innleiddar viðkomandi gerðir ESB. Í reglugerðinni er kveðið á um að riðusmituðum úrgangi skuli fargað með brennslu. Förgun úrgangs er á verksviði umhverfis- og auðlindaráðuneytis og Umhverfisstofnunar.

Riðusmit sem greindist í Skagafirði í haust var gríðarlega umfangsmikið og magn úrgangs sem til féll við niðurskurð var meira en tiltækur brennsluofn réð við. Vegna þessara sérstöku aðstæðna var í samráði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Matvælastofnunar og Umhverfisstofnunar tekin ákvörðun um að urða það magn sem ekki var unnt að brenna. Úrgangur var urðaður á aflögðum urðunarstað í nágrenni við þau sauðfjárbú þar sem framkvæma þurfti niðurskurð vegna riðuveiki.


Sú staða sem skapaðist vegna riðuveiki í Skagafirði kallar á skoðun á því hvort nauðsynlegt sé að tryggja að fyrir hendi séu innviðir sem gera þar til bærum yfirvöldum kleift að fara að reglum við eyðingu á úrgangi sem þessum. Þyrfti í því skyni að kanna hvort auka þyrfti afkastagetu þeirra staða þar sem úrgangi er brennt með fullnægjandi hætti. Er það hluti þeirrar vinnu sem hafin er í ráðuneytinu.“

 

Viðbrögð vegna alvarlegra búfjársjúkdómanna

Í fyrirspurn Höllu Signýjar Kristjánsdóttur var einnig spurt hvort til séu viðbragðsáætlanir vegna alvarlegustu búfjársjúkdómanna og þar með talið riðu.


Samkvæmt svari ráðherra heldur Matvælastofnun utan um viðbragðsáætlun við helstu dýrasjúkdómum og þar með talið riðu riðu, í gæðahandbók sinni. „Í áætluninni er að finna það ferli sem unnið er eftir við uppkomu þeirra sjúkdóma sem áætlunin tekur til. Ákvarðanir um aðgerðir byggjast á fjölmörgum þáttum sem geta verið ólíkir í hverju tilfelli. Í stuðningsskjölum sem vísað er til í viðaukum er að finna ýmsar leiðbeiningar sem nýtast við ákvarðanatöku um viðbrögð. Þessi skjöl eru í stöðugri endurskoðun og miðað er við að þeim fjölgi jafnt og þétt. Í lið 08.07 í gæðahandbókinni er sérstaklega fjallað um riðuveiki. Ráðuneytinu er kunnugt um að Matvælastofnun heldur reglulega viðbragðsæfingar til að kanna og aðlaga þessar viðbragðsáætlanir.“

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.