Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Í ár verður heimilt að veiða 936 hreindýr, þar af 499 kýr og 437 tarfa, sem er veruleg aukning frá fyrra ári.
Í ár verður heimilt að veiða 936 hreindýr, þar af 499 kýr og 437 tarfa, sem er veruleg aukning frá fyrra ári.
Mynd / Pixabay
Fréttir 16. febrúar 2026

Bætt í hreindýraveiðikvótann

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Hreindýraveiðikvótinn eykst um 40,8 prósent frá fyrra ári á grundvelli þess að sumarstofn hreindýra hefur stækkað um allt að 1.000 dýr.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur tilkynnt veiðiheimildir fyrir árið 2026 eftir að hafa tekið við tillögum Náttúruverndarstofnunar. Alls verður heimilt að veiða 936 dýr í ár, þar af 499 kýr og 437 tarfa, sem er veruleg aukning frá fyrra ári þegar kvótinn var 665 dýr. Nemur aukningin um 40,8 prósentum. Sumarstofn hreindýra er nú metinn um 5.000 dýr, samanborið við 4.000 á síðasta ári og er það 25 prósenta áætluð fjölgun milli ára.

Nóvemberveiðar til álagsdreifingar

Veiðitími tarfa verður frá 15. júlí til 15. september, en veiðitími kúa frá 1. ágúst til 20. september. Á svæði 8 verður heimilt að veiða allt að 40 kýr til viðbótar í sérstökum nóvemberveiðum til að dreifa álagi á hjarðir. Veiðimenn eru eindregið hvattir til að forðast að fella mylkar kýr fyrstu tvær vikurnar, og eru veturgamlir tarfar alfriðaðir. Kálfaveiðar eru óheimilar.

Auk almennra takmarkana eru sett sértæk svæðisbundin skilyrði, t.d. bann við kúaveiðum á hluta veiðisvæðis 2 til að stuðla að stofnvexti og tilmæli um að draga úr hættu á að dýr færist á milli sauðfjárvarnahólfa.

Gjald fyrir veiðileyfi verður 241.600 kr. fyrir tarf og 137.700 kr. fyrir kú, og fer salan eingöngu fram í gegnum Náttúruverndarstofnun. Umsóknarfrestur er til 2. mars.

Stofnstýring og svæðaskipting

Kvótinn skiptist milli níu veiðisvæða samkvæmt nánari útlistun í auglýsingu ráðuneytisins. Veiðiheimildirnar eru veittar með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum. Leiðsögumenn bera áfram sérstaka ábyrgð á að leiðbeina veiðimönnum við val á bráð.

Markmið kvótasetningar er að viðhalda heilbrigðum og stöðugum stofni og draga úr neikvæðum áhrifum veiða á kálfa og hjarðir á viðkvæmum svæðum. Jafnframt er reynt að stýra veiðum þannig að þær valdi ekki röskun á viðkvæmum gróðursvæðum.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.