Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 11 ára.
Bætt beitarstjórnun - lykill að auknum afurðum
Mynd / smh
Á faglegum nótum 23. mars 2015

Bætt beitarstjórnun - lykill að auknum afurðum

Höfundur: Eyþór Einarsson Ábyrgðarmaður sauðfjárræktar
Augljóst samband er milli þéttleika í högum og afurðasemi búfjár.  Einhvers staðar er skurðpunktur þar sem hámarksnýtingu er náð. 
 
Eyþór Einarsson.
Ef farið er yfir þann punkt er jafnvel bæði farið að ganga á landgæðin og búreksturinn orðinn óhagkvæmari sökum lakari afurða.  Ástæður þess að afurðir minnka geta bæði verið að framboð af góðri beit er of lítið og að smitálag í högum er of mikið.  Með góðu beitarskipulagi má vinna gegn þessum fylgifiskum aukins beitarálags. 
 
Víða erlendis þar sem búið er við mikinn þéttleika sauðfjár í högum er lögð þung áhersla á beitarstýringu og varnir gegn sníkjudýrum. Mótstaða gegn ormasmiti er t.d. sums staðar tekin inn í ræktunarstarfið.  Hér á landi eru aðstæður á vissan hátt ólíkar því sem gerist almennt erlendis. Engu að síður eru víða dæmi hérlendis þar sem beitarþungi er mikill vor og haust og miklar líkur á að mikið smitálag í högum sé að hamla vexti lamba.
 
Rannsóknir og leiðbeiningar tengdar beitarstjórnun og sníkjudýravörnum fyrir sauð­fjárbændur hafa ekki verið stundaðar í miklum mæli á síðustu árum og orðnir nokkrir áratugir síðan helstu rannsóknir fóru fram á þessu sviði hér á landi. 
 
Fagráð í sauðfjárrækt ákvað því að taka þennan málaflokk fyrir á fagráðstefnu sem haldin verður í tengslum við aðalfund LS nú í mars.  Markmiðið er að fá innsýn í það hvernig leiðbeiningum er háttað í dag hjá þjóð sem leggur mikið upp úr góðri beitarstýringu.  Jafnframt að draga fram þá reynslu og þekkingu sem okkar sérfræðingar hafa fram að færa um beitarstjórnun á ræktuðu landi og varnir gegn sníkjudýrasmiti. 
 
Á ráðstefnunni munu þrír sérfræðingar tengdir beit og sníkjudýravörunum flytja erindi.   Fyrstan skal nefna Skotann Rhidian Jones sem vinnur hjá SAC Consulting.  SAC er skammstöfun fyrir Scottish Agricultural College og er partur af skoska landbúnaðarháskólanum SRUC. Hann starfar sem ráðgjafi fyrir bændur m.a. í beitarnýtingu og sjúkdómavörnum.  Hann mun fjalla um beitarskipulag, mat á hæfilegu beitarálagi, sníkjudýravarnir með lyfjum og beitarskipulagi og hvernig staðið er að kynbótum fyrir ormamótsstöðu.  Dr. Jóhannes Sveinbjörnsson, bóndi í Heiðarbæ og sérfræðingur hjá LBHÍ, mun fjalla um nýtingu ræktaðs lands og beitarstjórnun út frá íslenskum aðstæðum og rannsóknum.  Þá mun Hákon Hansson dýralæknir fjalla um forvarnir og meðhöndlun við orma- og hníslasmiti hér á landi.   
Ráðstefnan fer fram í Bændahöllinni föstudaginn 27. mars. Hún stendur frá 14:30 til 17:30 og er öllum opin. Hér er gott tækifæri fyrir bændur til að auka þekkingu sína. Þetta er málaflokkur sem við þurfum örugglega að gefa meiri gaum en bætt beitarstjórnun getur verið lykillinn að auknum afurðum hjá mörgum sauðfjárbændum. 
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.