Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Oddný Steina Valsdóttir, formaður LS, og Sindri Sigurgeirsson, formaður BÍ.
Oddný Steina Valsdóttir, formaður LS, og Sindri Sigurgeirsson, formaður BÍ.
Mynd / HKr/TB
Fréttir 29. desember 2017

Bændur ánægðir með að málið sé í höfn

Höfundur: TB / VH

Fjáraukalög, þar sem komið er til móts við vanda sauðfjárræktarinnar, voru afgreidd á Alþingi í gærkvöldi. Samþykkt var að verja 665 milljónum króna til að bregðast við markaðserfiðleikum sem steðjað hafa að sauðfjárframleiðslu á yfirstandandi ári samanber áform ríkisstjórnarinnar eins og þau birtast í stjórnarsáttmálanum. Fjárhæðinnni verður varið til þess að mæta afkomuhruni og vinna að endurreisn afkomu greinarinnar. Forystumenn bænda lýsa yfir ánægju með að búið sé að afgreiða fjáraukalögin og vona að sauðfjárbændur verði sáttir við þá niðurstöðu sem liggur fyrir.

Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtakanna, segist feginn að búið sé að afgreiða fjáraukalög þar  sem komið er til móts við alvarlegan rekstrarvanda sauðfjárræktarinnar. Hann segir að málið hafi tekið mikinn tíma og það séu ófáir fundir á milli bænda og ríkisvalds að baki.

„Við hjá Bændasamtökunum lýsum ánægju yfir því að þetta mál sé loksins í höfn. Það að verja 550 milljónum króna í stuðning beint til bænda og 115 milljónum að auki til að styrkja undirstöður greinarinnar er viðurkenning á alvarlegri stöðu hennar. Það ber að þakka fyrir slíkar aðgerðir. Allt þetta mál hefur tekið tíma og mikil vinna að baki hjá fulltrúum bænda. Alþingiskosningar settu strik í reikninginn og það tafði framgang málsins en síðasta ríkisstjórn var komin langt með afgreiðslu þess þó ekki næðist að koma því frá. Nú þurfa allir að líta fram á veginn og vinna saman að því að ná sauðfjárræktinni á réttan kjöl,“ segir Sindri Sigurgeirsson. Aðspurður um það hvenær sauðfjárbændur mættu eiga von á greiðslum í samræmi við fjárveitingu Alþingis þá taldi hann að Búnaðarstofa Matvælastofnunar myndi afgreiða málið í janúar, málið ætti ekki að vera flókið í framkvæmd.

Breytingar á ráðstöfun fjármuna til bóta

Nokkur umræða spannst í hópi sauðfjárbænda um ráðstöfun fjármunanna og kom fram gagnrýni á tillögur ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru skömmu fyrir jól. Fjárlaganefnd gerði breytingar að undirlagi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem lutu að því að auka almennan stuðning til bænda á kostnað svæðisbundins stuðnings og minnka framlag til nýsköpunar og til aðgerða á sviði kolefnisjöfnunar.

Oddný Steina Valsdóttir, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, segir breytingarnar sem gerðar voru á tillögum ríkisstjórnarinnar vegna rekstrarvanda sauðfjárræktarinnar vera til bóta.  „Aðdragandi úthlutunarinnar er ekki langur enda stutt síðan ríkisstjórnin tók til starfa. Eflaust eru einhverjir sem líta svo á að ganga hefði mátt lengra í breytingu en ég vona að menn sætti sig við þessa lendingu,“ sagði Oddný Steina.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.