Aukin losun gróðurhúsalofttegunda vegna framkvæmda
Mynd / ál
Fréttir 31. ágúst 2026

Aukin losun gróðurhúsalofttegunda vegna framkvæmda

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

- Hálfsársuppgjör loftslagsbókhalds Landsvirkjunnar

Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að heildarlosun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi fyrirtækisins hafi aukist um 49% milli ára. Aukning sé tímabundin og megi að mestu rekja til framkvæmda við Vaðölduver, þar sem unnið er að uppsetningu á fyrsta vindorkuveri landsins, og undirbúningi Hvammsvirkjunnar. Þetta kemur fram í hálfsársuppgjöri loftslagsbókhalds fyrir árið 2026

Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi Landsvirkjunar, bæði vegna orkuvinnslu og framkvæmda, nam 7,6 g CO2-íg/kWst. Mæld í tonnum jókst hún um 36% og nam 47.400 tonnum CO2-ígilda, þar af var losun vegna orkuvinnslunnar um 13.400 tonn. Kolefnisspor á orkueiningu, þ.e.a.s. losun að frádreginni kolefnisbindingu, var 4,6 gCO₂-íg/kWst. Mælt í tonnum var kolefnissporið 28.604 tonn CO2-ígilda en kolefnisbinding á vegum fyrirtækisins var 18.800 tonn eða 5.400 tonnum CO2-ígilda meiri en losun vegna orkuvinnslu.

Enn í samræmi við markmið um 1,5°C hlýnun

Á sama tíma og losun vegna framkvæmda jókst, dróst losun gróðurhúsalofttegunda vegna orkuvinnslu saman. Losun vegna orkuvinnslu á orkueiningu hjá Landsvirkjun nam 2,1 grömmum koldíoxíðígilda á hverja unna kílóvattstund á fyrri helmingi ársins 2026 og dróst saman um 27% frá árinu áður. Samdráttinn megi að mestu rekja til þess að losun frá jarðvarmastöðvum minnkaði um 37% milli ára vegna viðhaldsstopps í Kröflustöð. Losun frá jarðvarmavinnslu sé stærsti beini losunarþátturinn í starfsemi Landsvirkjunnar. Losun frá lónum hafi einnig dregist saman um 24% milli ára. Sú losun sé háð veðurfari og ræðst af fjölda þeirra daga sem lón eru ísilögð. 

Forðuð losun vegna raforkuvinnslu Landsvirkjunar á fyrri hluta ársins nam um 1,4 milljónum tonna CO2-ígilda.

Samkvæmt Landsvirkjun samræmist orkuvinnslan enn markmiðum heims um 1,5°C hlýnun og heildarlosun er áfram undir viðmiðum um kolefnishlutleysi orkufyrirtækja, 9,1 g CO2-íg/kWst, sem fjallað er um í aðgerðaáætlun í loftslags- og umhverfismálum.

Skylt efni: Umhverfismál | Landsvirkjun

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f