Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Mynd / Kristján Þ. Halldórsson
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothættar byggðir um 80 milljónir króna á ári næstu fimm árin. Þessi fjárhagslegi stuðningur markar ákveðin tímamót og gerir það að verkum að hægt er að stækka og þróa verkefnið enn frekar.

Vegna þessarar aukningar hefur starfsfólk Byggðastofnunar sett saman nýja áætlun með það fyrir augum að geta brugðist við ákalli um þátttöku fleiri byggðarlaga þó þau skori ekki endilega hæst á mælikvörðum um brothættu. Samhliða hefur þriggja ára tilraunaverkefnið Brothættar byggðir II verið fest í sessi, en það hefur verið í gangi undanfarin tvö ár í tveimur samfélögum sem áður tóku þátt í grunnverkefninu.

Þrískipt skipulag frá og með 2027

Frá byrjun árs 2027 verður verkefninu Brothættar byggðir skipt upp í þrjár ólíkar þátttökuleiðir. Þær byggja allar á hugmyndafræði upphaflega verkefnisins og lagt er upp með að verkefnið rúmi ákveðinn fjölda samfélaga í einu. Meginmarkmið allra verkefnanna þriggja er eftirfarandi: Að valdefla og virkja frumkvæði íbúa, treysta stoðir dreifðra byggða og að styrkja byggðafestu.

Lýsing og áherslur

Brothættar byggðir I

Grunnverkefnið sem miðar að stuðningi við brothættustu byggðirnar.

  • Unnið með 4 til 5 byggðarlög, með allt að 800 íbúum
  • Fimm ára verkefni.
  • Verkefnisstjórnun að stærstum hluta fjármögnuð af Byggðastofnun.
  • Frumkvæðisstyrkir taka mið af íbúafjölda og koma frá verkefninu/ Byggðastofnun.

Brothættar byggðir II

Framhaldsverkefni sem byggir á reynslu síðustu tveggja ára.

  • Unnið með 2 byggðarlög.
  • Fyrrum þátttökubyggðarlög Bb.
  • Þriggja ára verkefni.
  • Verkefnis- stjórnun fjármögnuð af viðkomandi sveitarfélagi í samstarfi við lands- hlutasamtökin.
  • Frumkvæðisstyrkir taka mið af íbúafjölda og koma frá verkefninu/Byggðastofnun.

Sterkari byggðir

Nýtt verkefni sem víkkar út hóp þeirra byggðarlaga sem geta fengið stuðning.

  • Unnið með 2 byggðarlög, með allt að 1400 íbúum.
  • Fimm ára verkefni.
  • Í verkefninu er gert ráð fyrir að Byggðastofnun greiði helming þess framlags sem greitt er í Brothættum byggðum upp í kostnað við starf verkefnisstjóra. Sveitarfélag beri kostnað sem út af stendur.
  • Frumkvæðisstyrkir taka mið af íbúafjölda og koma frá verkefninu/ Byggðastofnun.
  • Ólíkt grunnverkefni Brothættra byggða einskorðast þátttaka ekki við byggðarlög sem glímt hafa við langvarandi vanda og hnignun undanfarin ár.

Á næstu misserum skapast nú svigrúm til þátttöku nýrra byggðarlaga sem hafa áhuga á að efla samfélagið með hugmyndafræði Brothættra byggða. Byggðaþróunarverkefnið hófst upphaflega árið 2012.

Síðan þá hafa samtals 17 byggðarlög tekið þátt frá upphafi en um ræðir samstarfsverkefni á milli Byggðastofnunar, viðkomandi sveitarfélags og viðeigandi landshlutasamtaka.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...