Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Frá smökkunaraðstöðu Eimverks.
Frá smökkunaraðstöðu Eimverks.
Fréttir 22. janúar 2024

Aukið samstarf við íslenska kornbændur

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Mikil aukning var á síðasta ári í framleiðslu og sölu á íslensku viskíi hjá Eimverki Distillery. Notaði brugghúsið 50 prósent meira af byggi á síðasta ári en árið á undan, eða samtals 150 tonn.

Haraldur Haukur Þorkelsson, framkvæmdastjóri Eimverks Distillery.

Í byrjun síðasta árs sagði Haraldur Haukur Þorkelsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, frá stórum sölusamningum við Kínverja, Bandaríkjamenn og Þjóðverja í viðtali hér í blaðinu. Vegna þeirra þyrfti að auka hráefnisframleiðsluna hratt á næstu tíu árum. Fara þyrfti úr 100 tonna byggframleiðslu í 10 þúsund tonn á tíu árum til að geta staðið við samninga. Stefnt yrði að auknu samstarfi við íslenska kornbændur, enda verði hráefnið til viskíframleiðslunnar að vera alíslenskt.

Rækta sambandið við bændur

Eimverk hefur á undanförnum árum ræktað sjálft mest allt korn til framleiðslunnar, á sínu ræktarlandi í Bjálmholti í Holtum og nálægum löndum Gunnarsholts og Lækjar, sem það hefur verið með á leigu.

„Það er rífandi gangur hjá okkur, erum að reisa nýja aðstöðu í Bjálmholti, þar sem verður geymsla fyrir viskítunnur og bætt aðstaða fyrir kornverkun, samtals 500 fermetrar.

Þá höfum við bætt við okkur nokkrum ökrum fyrir rúgræktun næsta haust, fyrir nýja rúgviskíið okkar, og við stækkuðum aðstöðuna í Garðabæ þar sem bruggverksmiðjan er. Við erum nú að plana sumarið, það verður ekki endilega mikil aukning í eigin ræktun en við erum að rækta sambönd við fjölmarga bændur fyrir næstu skref og samstarf,“ segir Haraldur.

Hann segir að salan hafi gengið vel á síðasta ári, aukist um 30 prósent frá fyrra ári. Öll stækkun og framleiðsluaukning taki hins vegar sinn tíma, það taki í það minnsta þrjú ár að fara í gegnum kerfið því það er sá tími sem þarf að geyma viskíið að lágmarki.

Umsókn um verndað afurðaheiti

Eimverk var stofnað árið 2009 með það markmið að framleiða úrvals viskí úr alíslensku hráefni. Fyrstu tíu árin fóru í að sanna að hægt væri að framleiða slíka gæðavöru. Á síðustu árum hefur vöxturinn verið hraður og eftirspurn vaxið langt umfram mögulega framleiðslu. Ef áformin til næstu tíu ára ganga eftir mun framleiðsluaukning vera orðin hundraðföld á árinu 2033.

Eimverk hefur sótt um að „íslenskt viskí“ verði verndað alþjóðlegt afurðaheiti og hefur umsóknin legið nokkuð lengi hjá Matvælastofnun til umfjöllunar. Haraldur telur brýnt að fá þessa vernd líkt og íslenska lopapeysan og íslenska lambakjötið hafa fengið, svo ekki þurfi að standa í samkeppni við aðra viskíframleiðendur sem kynnu að merkja sínar vörur sem „íslenskt viskí“, án þess að nokkurt íslenskt hráefni væri í því.

Skylt efni: Eimverk

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.