Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Auðgandi landbúnaður til umræðu á málþingi
Fréttir 5. mars 2025

Auðgandi landbúnaður til umræðu á málþingi

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Málþing um auðgandi landbúnað (e. regenerative agriculture) verður haldið 2. apríl á Hótel Hilton.

Þar munu þrír bandarískir fyrirlesarar og í það minnsta tveir íslenskir tala um þessa nálgun í átt að bættum jarðvegi í ræktarlöndum bænda.

Hulda Brynjólfsdóttir, bóndi í Lækjartúni í Ásahreppi og eigandi spunaverksmiðjunnar Uppspuna, er í hópi hvatamanna málþingsins og mun flytja erindi um sína reynslu af aðferðinni sem hefur verið stunduð í Lækjartúni frá 2019. Hún segir að forsögu málþingsins megi rekja til fundar nokkurra bænda snemma á síðasta ári.

„Þá komum við saman, Haraldur Guðjónsson og Þórunn Ólafsdóttir frá Dalahvítlauk, við Tyrfingur Sveinsson, Lækjartúni og þau Ævar Austfjörð og Ása Tryggvadóttir frá Litla búgarðinum. Við ræddum möguleikann á því að halda málþing og við vorum öll mjög áhugasöm um það. Því næst funduðum við með rektor Landbúnaðarháskóla Íslands og fulltrúum þaðan til að ræða hvernig mætti koma þessu til veruleika.“ Höfðu þau þá þegar nokkur nöfn þekktra aðila frá Bandaríkjunum sem gætu verið áhugasamir um að koma til Íslands og segja frá hvernig þessi aðferð virkar í þeirra landi.

„Hugmyndin er að ná til bænda og annarra sem rækta mat, hvort sem er kjöt eða grænmeti, á stórum skala eða bara í garðinum við húsið sitt. Ná til neytenda og hvetja þá til að taka upplýsta ákvörðun um hvernig mat þeir leggja sér til munns og vekja almenning til umhugsunar um ábyrga meðferð jarðvegs og meðhöndlun efna, svo sem áburðar, eiturefna og svo framvegis í ræktun matvæla,“ heldur Hulda áfram.

„Ákveðið var að leita til bandaríska sendiráðsins um stuðning til að koma fyrirlesurunum til landsins og var það gert með mjög jákvæðum árangri. Fullur styrkur var veittur til að fá fyrirlesara og þökkum við sendiráðinu kærlega fyrir stuðninginn. Þrír aðilar eru á leiðinni til landsins og munu dvelja hér í einhverja fleiri daga en einungis málþingsdaginn. Farið verður með þá í skoðunarferðir og heimsóknir til bænda,“ segir Hulda.

Ekki liggja fyrir drög að dagskrá en að sögn Huldu verður hún fljótlega kynnt.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.