Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 mánaða.
Árlega drukkna yfir 300 þúsund manns í heiminum, eða um 30 manneskjur á hverjum einasta klukkutíma. Á Íslandi drukknuðu 68 manns á tíu ára tímabili frá 2013–2023.
Árlega drukkna yfir 300 þúsund manns í heiminum, eða um 30 manneskjur á hverjum einasta klukkutíma. Á Íslandi drukknuðu 68 manns á tíu ára tímabili frá 2013–2023.
Mynd / aðsend
Fréttir 16. júlí 2025

Átak um öryggi barna í sundi

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Rauði krossinn á Íslandi hefur hleypt af stokkunum fræðslu- og forvarnarátaki um öryggi barna í sundi. Átakið er unnið í samstarfi við Reykjavíkurborg og Samtök forstöðumanna sundstaða á Íslandi (SFSÍ) og nær það til alls landsins.

Hildur Vattnes Kristjánsdóttir, sérfræðingur í skyndihjálp hjá Rauða krossinum, fer fyrir átakinu. „Tilgangur átaksins er fyrst og fremst að bjarga lífum með því að fræða foreldra og aðra um mikilvægi þess að fylgjast alltaf með börnum í sundi og kringum vatn. Börn á aldrinum 1–9 ára eru í meiri hættu en við hin á að lenda í vandræðum í sundi og að drukkna. Þó svo að börn séu með kúta eða eru synd er ekkert sem kemur í staðinn fyrir eftirlit foreldra því að barn getur drukknað á 30 sekúndum. Reykjavíkurborg og SFSÍ fannst mikilvægt að fara í átak í öryggi barna í sundi þar sem reynslan er farin að sýna okkur að oft hefur ekki mátt miklu muna að börn hafi drukknað. Flestir njóta þess að fara í sund á sumrin svo besti tíminn fyrir að hefja forvarnarátakið er einmitt núna,“ segir Hildur.

Öryggi og björgun í vatni

Flestar drukknanir verða á stöðum þar sem engir aðilar sinna eftirliti. Laugaverðir sinna eftirliti í sundlaugum á Íslandi. Rauði krossinn hefur um nokkurt skeið kennt öryggi og björgun í vatni, námskeið sem eru sérstaklega sniðin að starfsfólki sund- og baðstaða.

Rauði krossinn ber einnig ábyrgð á hæfnismati laugavarða, sem þeir þurfa að standast árlega til að halda réttindum sínum. „Laugaverðir eru viðbragðsaðilar en það þýðir að þeir bregðast við um leið og eitthvað gerist. Erlendar rannsóknir sýna að í 9 af hverjum 10 tilvikum þar sem fólk er í vandræðum í vatni eru það gestir sundlauga sem fyrstir bregðast við. Það skýrist af því að þeir eru þá í návígi við þann sem er í hættu staddur,“ segir Hildur.

68 drukknanir á Íslandi á tíu árum

Hildur segir að á 10 ára tímabili, eða árin 2013 til 2023, hafi 68 manns drukknað á Íslandi. „Enginn á að drukkna, enginn. Drukknun er orðin að hinum þögla faraldri í heiminum í dag en við erum farin að taka eftir aukinni tíðni drukknunarslysa og nú þurfum við að bregðast við. Á þessum tíu árum eru það að meðaltali 7 einstaklingar á ári sem láta lífið í drukknunarslysum. Fæstu tilfellin eru í sundlaugum, eða sex, og ástæðan er að þar er lögbundnu eftirliti sinnt af laugarvörðum sem eru viðbragðsaðilar. Einnig vil ég benda á að staðan í dag er þannig að það er engin starfandi rannsóknarnefnd drukknunarslysa á Íslandi, en flest löndin í kringum okkur hafa brugðist við aukinni tíðni drukknunar með því að stofna slíkar nefndir,“ segir Hildur.

Allar nánari upplýsingar um átakið er að finna á heimasíðu Rauða krossins, www.raudikrossinn.is.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.