Torfhildur Ólafsdóttir, höfundur bókarinnar Framtíðin á ferðinni.
Torfhildur Ólafsdóttir, höfundur bókarinnar Framtíðin á ferðinni.
Menning 8. júní 2026

Ást og fordómar

Höfundur: Þröstur Helgason
„Bókin er ástarsaga en hún er líka öðrum þræði viðbragð við þeirri kynþáttahyggju sem hefur tekið að bera á í auknum mæli í bæði alþjóðlegri og íslenskri pólitík á undanförnum árum.“

Framtíðin á ferðinni heitir ný skáldsaga eftir Þórhildi Ólafsdóttur. Þetta er fjórða frumsamda bók Þórhildar en hún hefur einnig sinnt þýðingum, nú síðustu ár á franska nóbelshöfundinum Annie Ernaux. Framtíðin sem nefnd er í titlinum er bæði sögupersónanna en líka samtími okkar hér og nú og jafnvel það sem fram undan er. Bókin er ástarsaga en hún er líka öðrum þræði viðbragð við þeirri kynþáttahyggju sem hefur tekið að bera á í auknum mæli í bæði alþjóðlegri og íslenskri pólitík á undanförnum árum.

Sagan gerist í París, Reykjavík og litlu þorpi á Íslandi snemma á áttunda áratugnum. Íslensk stelpa, Lovísa, heldur til stórborgarinnar á sumarnámskeið í frönsku og kynnist þar ungum manni, Hüseyin, af sýrlensku bergi brotinn og þau fella hugi saman. Fljótlega verður þó ljóst að þótt ástin sé heit þá er veruleiki fordóma og landamæra, bæði eiginlegra og óeiginlegra, ískaldur. Unga parið stendur því frammi fyrir ýmsum erfiðum spurningum þegar þau velta fyrir sér áframhaldandi sambandi. Framtíð þeirra saman myndi reyna á þau með ýmsum hætti.

Hüseyin gerir sér grein fyrir þessu strax í upphafi sambandsins og gerir vandann og raunar hætturnar sem þau standa frammi fyrir að umræðuefni. Lovísa á hins vegar erfitt með að skilja hvað hann er að fara. Komandi frá þessari einangruðu eyju úti í NorðurAtlantshafi í byrjun áttunda áratugarins virðist hún ekki hafa komist í tæri við þá fordóma og hatur sem Hüseyin útlistar fyrir henni á ítarlegan og raunar fremur almennan hátt. Sakleysi hennar verður á köflum afhjúpandi fyrir það einsleita og fáfróða samfélag sem hún sprettur úr hér uppi á Íslandi. Andstæðurnar eru að minnsta kosti skýrt dregnar í sögunni, kannski of skýrt. Undiraldan í frásögninni verður fyrir vikið aldrei mikil. Spennan í frásögninni myndast ekki síst í tíðum skiptum á milli sjónarhorna. Við sjáum hlutina stundum með augum Lovísu, sjaldnar með augum Hüseyins og svo er sagan að hluta til sögð í þriðju persónu. Þessi frásagnarháttur er viðeigandi í sögu um ólík sjónarhorn á heiminn, ólíkar raddir sem kallast á.

Bókin er áhugaverð glíma við stórt og mikið viðfangsefni sem lítt hefur verið fjallað um í íslenskum bókmenntum. Þórhildur fer vel með efnið en nálgast það stundum á fullvarfærnislegan og almennan hátt. Ástarsagan er límið í bókinni og drifkraftur hennar. Aðalpersónurnar tvær eru sömuleiðis sterkar og vel mótaðar. Sögustaðirnir gegna einnig lykilhlutverki í bókinni, einangruð eyjan í úthafinu og svo suðupottur stórborgarinnar í miðri Evrópu. Í henni eiga elskendurnir þó sína litlu eyju, eins konar griðastað ástarinnar sem þau eiga sín á milli.

Það er óhætt að mæla með lestri bókarinnar sem að lokum færir von um að allt muni á endanum fara vel.

Skylt efni: Hrifla

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.