Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Menn óttast um hag landbúnaðar í Eyjafjarðasveit verði tollverndin tekin af.
Menn óttast um hag landbúnaðar í Eyjafjarðasveit verði tollverndin tekin af.
Mynd / MÞÞ
Fréttir 22. október 2015

Ársvelta upp á 28 milljarða í hættu

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar fjallaði á dögunum um samantekt Hólmgeirs Karlssonar varaoddvita um stöðu landbúnaðar og matvælaframleiðslu við Eyjafjörð. Í kjölfar umræðunnar var samþykkt bókun þar sem segir að sveitarstjórn skori á þingmenn að staðfesta ekki frekari niðurfellingu á tollum á landbúnaðarafurðum.  
 
Vill sveitarstjórn að málið verði tekið upp að nýju og að menn einbeiti sér að því strax nú á haustþingi að undirbúa nýja samninga um starfsskilyrði landbúnaðarins til lengri tíma.  Núverandi búvörusamningur rennur út í lok næsta árs. „Tollamál eru og hafa verið hluti af þeim samningum og því rökrétt að ákvarðanir um breytingar á þeim verði teknar samhliða gerð nýrra samninga við greinina til lengri tíma,“ segir í ályktun sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar.
 
Eyjafjörður eitt öflugasta svæði landsins í frumframleiðslunni
 
Fram kemur í greinargerð Hólmgeirs að landbúnaður og matvælaframleiðsla eru ein meginstoð byggðar við Eyjafjörð og nágrenni.
 
Svæðið sé eitt öflugasta svæði landsins í frumframleiðslunni, mjólkur- og kjötframleiðslu, ásamt fóðuriðnaði og öflugum úrvinnslufyrirtækjum bæði í mjólk og kjöti. Þá er einnig á svæðinu fjöldi fyrirtækja sem þjónusta greinina. Svæðið sé því einnig eitt mikilvægasta svæði landsins þegar kemur að því að uppfylla stefnu þjóðarinnar varðandi matvælaframleiðslu og matvælaöryggi.
 
Ef tekin eru störf í landbúnaði á svæðinu ásamt úrvinnslufyrirtækjunum í mjólk og kjötiðnaði, fóðurframleiðslu og helstu aðilum í þjónustu við landbúnaðinn má gróflega áætla að samanlögð ársvelta þessara greina sé ekki undir 28 milljörðum króna og rétt tæplega 1.000 starfi við greinina.
 
Vekur ugg varðandi framtíðarhorfur
 
„Nýgerður milliríkjasamningur milli Íslands og Evrópusambandsins (ESB) um viðskipti með búvörur og gagnkvæma niðurfellingu tolla á þeim vekur ugg varðandi framtíðarhorfur landbúnaðar og matvælaiðnaðar hér. Auk þess er þessi samningur gerður án samráðs eða samtala við hagsmunaaðila í greininni og í algjörri andstöðu við gildandi samninga um starfskilyrði greinarinnar sem og stefnu stjórnvalda um matvælaframleiðslu landsins,“ segir í greinargerð Hólmgeirs.
 
„Er það mat okkar að afnám tolla í þeim mæli sem samningarnir geri ráð fyrir geti haft ófyrirséðar afleiðingar fyrir landbúnað og matvælavinnslu á Íslandi. Augljósust eru áhrifin sem strax myndi gæta í alifugla- og svínarækt, en veiking þeirra greina myndi síðan strax hafa áhrif inn í mjólkur- og kjötgreinarnar þar sem m.a. fóðurframleiðsla og slátrun og úrvinnsla yrði óhagkvæmari eftir og önnur þjónusta við landbúnainn einnig dýrari.“
 
Fram kemur í greinargerðinni að ekki sé hægt að ætla íslenskum landbúnaði og matvælavinnslu að standast opna samkeppni við massaframleiðslu matvæla, sem oft eru af allt öðrum og lakari gæðum og framleidd í allt öðru efnahagsumhverfi en okkar. Efnahafsumhverfi þar sem verðlag er lægra og laun og annar framleiðslukostnaður því einnig lægri.
 
Markmið okkar er, segir í greinargerðinni, að framleiða matvæli af hæstu gæðum, sem byggja á hreinleika og gæðum landsins, landbúnaði og matvælavinnslu í sátt við umhverfi sitt. Matvörur sem eru hollari en gengur og gerist. Slíkar matvörur eiga einnig að eiga sóknarfæri á alþjóðamarkaði með síaukinni eftirspurn eftir öruggum og heilnæmum matvælum. Markmið þjóðarinnar er einnig að vera sjálfri sér nóg um öll helstu matvæli og skapa þannig öryggi í fæðuöflun.
 
Gríðarlegum verðmætum kastað á glæ
 
Ótalin eru einnig fjölmörg önnur samfélagsáhrif af samdrætti í landbúnaði á landsbyggðinni.
Ástæða er þó til að nefna sérstaklega að landbúnaðurinn sem grunnur að byggð á landsbyggðinni er ein af grunnforsendum þess að ferðaþjónustan getur vaxið og dafnað.
 
„Með slíkum aðgerðum eins og þessum tollalækkunum nú er því verið að kasta á glæ gríðarlegum verðmætum og afleiðingarnar fyrir samfélagið geta verið mjög miklar,“ segir Hólmgeir. 
 
„Að farið sé í slíkar aðgerðir undir því yfirskini að þetta eigi að vera neytendum til góða þar sem matvælaverð muni lækka eru lítil rök, því fátt bendir til þess í dag að slíkt muni leiða til lægra verðs til lengri tíma litið. Miklar efasemdir eru einnig þegar komnar fram um að slíkt muni yfirhöfuð skila sér út í verðlagið.“
 
Stefna stjórnvalda um landbúnað er einnig skýr, segir í greinargerðinni en þar segir meðal annars: „Ríkisstjórnin lítur á landbúnað sem eina af mikilvægustu atvinnugreinum framtíðarinnar. Vaxandi eftirspurn eftir mat á heimsvísu skapar íslenskum landbúnaði sóknarfæri með möguleikum á aukinni framleiðslu og margbreytilegum afurðum. Ríkisstjórnin mun gera íslenskum landbúnaði kleift að nýta þau sóknarfæri sem greinin stendur frammi fyrir. Með það fyrir augum er brýnt að kanna með hvaða hætti er unnt að auka verðmætasköpun og nýta sem best tækifærin sem felast í sveitum landsins.“
 
Matvælaiðnaður ein af stærstu undirgreinum iðnaðarins
 
Í lok greinargerðarinnar eru taldar upp nokkrar staðreyndir um matvælavinnslu á Íslandi, m.a að samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands hafi velta kjötiðnaðar, mjólkuriðnaðar og fóðurframleiðslu á landsvísu verið  91,4 milljarðar árið 2014. Matvælaframleiðslan án fiskvinnslu velti um 127,5 milljörðum í fyrra. Áætluð velta í vinnslu á mjólkur- og kjötafurðum er um 60 milljarðar króna og gróflega áætlað starfa milli tvö og þjú þúsund manns í afurðastöðvum í mjólkur- og kjötiðnaði.
 
Matvælaiðnaður á Íslandi er ein af stærstu undirgreinum iðnaðarins með rúm 17% af heildarveltu í iðnaði. Þá er fiskvinnsla ekki talin með. Í matvælaiðnaði störfuðu á síðasta ári um 4.000 manns sem nemur 12,7% af störfum í iðnaði eða 2,9% af heildarvinnuafli í landinu. 
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.