Stöðvarfjörður.
Stöðvarfjörður.
Fréttir 3. júní 2026

Ársskýrsla Brothættra byggða: Góður árangur

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Í nýútgefinni ársskýrslu Byggðastofnunar yfir verkefnið Brothættar byggðir kemur fram að stofnunin leggi áframhaldandi áherslu á markvissar aðgerðir til að auka viðnámsþrótt brothættra byggðarlaga.

Þátttökubyggðarlögin í verkefninu Brothættar byggðir eiga það sameiginlegt að þar hefur verið mikil fólksfækkun undanfarna áratugi og skekkt aldursdreifing sem hefur áhrif á þjónustustig, sjálfbærni og lífsgæði íbúa til lengri tíma litið.

Aðildasveitarfélög 2026

Samkvæmt skýrslu stofnunarinnar hefur ósk sveitarstjórnanna í Stöðvarfirði og í Dalabyggð um framlengingu verkefnistíma út árið 2026 verið samþykkt, en sú ákvörðun skapar mikilvægt svigrúm til að fylgja eftir þeim verkefnum sem þegar eru farin af stað og styrkir áframhaldandi uppbyggingu. Áætlað er að skerpt verði á eftirfylgni verkefna í Brothættum byggðum eftir að Byggðastofnun dregur sig í hlé.

  • Verkefni Stöðvarfjarðar hófst formlega í mars 2022 með virkri þátttöku íbúanna, sem hafa í sameiningu tekið markviss skref í að treysta innviði byggðarlagsins. Nú í ár lokaðist umsóknarfrestur fyrir styrki þann 10. febrúar sl., en ákveðið var að veita styrki til allra verkefnanna að þessu sinni. Styrkur til verslunar var veittur sem mun opna á vormánuðum en verslunarleysi síðustu ára hefur hvílt þungt á íbúum.
  • Í Dalabyggð hófst verkefnið að sama skapi í mars 2022 og íbúar sýnt mikinn kraft og þátttökuvilja til uppbyggingar samfélagsins. Líkt og hjá Stöðvarfirði var verkefnastyrkur veittur til allra verkefna en alls bárust þrjátíu umsóknir. Þykir mikil og góð uppbygging á svæðinu sem hefur hlotið jákvæða athygli nærsveitarmanna. Á sama tíma og eldri svæði fá framlengingu hafa sveitarfélögin Kaldrananeshreppur og Reykhólahreppur nýverið hafið þátttöku sína í Brothættum byggðum, allt til ársins 2030.
  • Innleiðing hófst í Reykhólahreppi í lok árs 2024 en ólíkt eldri verkefnum er samningurinn gerður til fimm ára í stað fjögurra. Þar hefur áherslan verið á jákvætt og umburðarlynt samfélag, samstöðu um auðlindanýtingu og frjótt atvinnu- og mannlíf.
  • Samstarfið við Kaldrananeshrepp, sextánda byggðarlagið sem tekur þátt í verkefninu, hófst formlega á miðju ári 2025. Efling samfélagsins, tengsl og inngilding voru þátttakendum ofarlega í huga, kallað var eftir hitaveituvæðingu víðar í sveitarfélaginu en nú er og nefndar hugmyndir um sólarorkuver og sjálfbærni svo eitthvað sé nefnt.

Brothættar byggðir II

Samhliða þessu hefur þriggja ára tilraunaverkefni, Brothættar byggðir II, verið hleypt af stokkunum. Því er ætlað að styðja sérstaklega við eldri þátttökusvæði eins og Raufarhöfn og Öxarfjarðarhérað sem þurfa áframhaldandi stuðning eftir lok eiginlegs verkefnatíma.

Verkefnið er áætlað til þriggja ára og hefur farið vel af stað, gert er ráð fyrir árlegri úthlutun styrkja úr frumkvæðissjóðum en verkefnistíminn nær til áranna 2025-2027. Markvissar íbúakannanir verða nýttar í upphafi og lok verkefna til að mæla raunverulegan árangur og breytingar á svokölluðum samfélagslegum viðnámsþrótti. Þetta tryggir að fjármagn úr sjóðunum renni beint í þau verkefni sem íbúar sjálfir forgangsraða á íbúaþingum.

Heildarúthlutun frumkvæðisstyrkja

Frumkvæðisverkefni þátttökubyggðarlaga Brothættra byggða eru fjölbreytt og ná til atvinnu-, menningar- og samfélagsuppbyggingar. Kemur fram á vefsíðu Byggðastofnunar að á árinu 2025 var rúmum 40 milljónum ráðstafað í frumkvæðissjóði þátttökubyggðarlaga í grunnverkefninu, auk fjármuna sem ekki höfðu nýst að fullu í eldri frumkvæðisverkefnum. Til viðbótar voru tæpar 25 milljónir til ráðstöfunar í tilraunaverkefnunum tveimur og var þeim fjármunum úthlutað til 17 verkefna.

Áframhaldandi sterk staða

Samkvæmt ársreikningi nam hagnaður Byggðastofnunar 590,5 milljónum króna, og eiginfjárstaðan sterk. Sú staða gefur stofnuninni færi á að vera öflugur bakhjarl atvinnulífs í landsbyggðunum sem hefur lengi treyst á fá undirstöðuatriði á borð við sjávarútveg og landbúnað. Áfram verður því lögð áhersla á að breikka þennan grunn með lánveitingum og styrkjum sem hvetja til nýsköpunar og nýrra atvinnutækifæra – auk verkefna á borð við Brothættar byggðir sem njóta þess markmiðs að styrkt verði bakland hverrar byggðar eins og best verður á kosið.

Skylt efni: brothættar byggðir

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.