Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Félagsleg einangrun er ein þeirra ástæðna sem ýta undir hnignandi geðheilsu.
Félagsleg einangrun er ein þeirra ástæðna sem ýta undir hnignandi geðheilsu.
Mynd / ns
Utan úr heimi 6. mars 2026

Andlegri heilsu bænda hnignar

Höfundur: Þröstur Helgason

Andlegri heilsu bænda hefur hnignað á Bretlandseyjum síðustu fjögur ár eftir því sem segir í frétt á BBC. Geðheilsu bænda eldri en 61 árs hnignar mest samkvæmt rann- sóknum Farm Safety Foundation.

Ein ástæðan er talin vera meiri félagsleg einangrun bænda sem vinna langan vinnudag, oft í dráttarvélum sínum eða með búfénaði. Sömuleiðis hefur samkomustöðum á landsbyggðinni í Bretlandi fækkað, svo sem knæpum og verslunum.

Fjölgun hefur orðið í sjálfsvígum bænda en árið 2024 var hún 7 prósent á Englandi og í Wales.

Þessi þróun helst í hendur við versnandi hag breskra bænda, segir í frétt BBC. Eldri bændur kveðast ekki hafa lifað erfiðari tíma í breskum landbúnaði. Kostnaður aukist, váleg veður eru algengari, skortur sé á starfsfólki, samkeppni við innfluttar landbúnaðarafurðir sé harðari og stjórnsýsla hafi aukist í kringum búskapinn.

Bændur kalla eftir opnara samtali við stjórnvöld svo þeir upplifi sig ekki eina í baráttunni við aðstæður. Þeir þurfi að hafa aðgang að hjálp þegar þeir þurfi á henni að halda.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.