Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Athafnamennirnir Brynjólfur og Valgarð vonast til að þessi nýja starfsemi laði að Íslendinga ekki síður en erlenda ferðamenn. Glæsilegt málverk eftir Hvergerðinginn Jakob Veigar prýðir samkomurými Gróðurhússins.
Athafnamennirnir Brynjólfur og Valgarð vonast til að þessi nýja starfsemi laði að Íslendinga ekki síður en erlenda ferðamenn. Glæsilegt málverk eftir Hvergerðinginn Jakob Veigar prýðir samkomurými Gróðurhússins.
Mynd / ghp
Fréttir 19. desember 2021

Andi Edens svífur yfir vötnum í Gróðurhúsinu

Höfundur: Guðrún Hulda Pálsdóttir

Gróðurhúsið er nýr áfangastaður í Hveragerði sem var opnaður fyrr í mánuðinum. Þar má finna hótel, mathöll, verslanir, kaffihús, bar, ísbúð og bændamarkað.

Félagarnir Valgarð Sörensen og Brynjólfur J. Baldursson standa að baki fjögurra hæða nýbyggingu sem blasir nú við þegar keyrt er framhjá Hveragerði.

„Ég man eftir Eden, sem var túristastopp áður en að ferða­mannaflaumurinn kom að einhverju viti. Um 300.000 ferðamenn stoppuðu í Eden á hverju ári, það er í raun ótrúlegt,“ segir Valgarð.

„Við bjuggum báðir lengi erlendis og flytjum svo heim kringum 2016 og sjáum þá hvernig umferðarflæðið hefur gjörbreyst á þessu svæði. Rútur stoppa gjarnan á bílastæðinu fyrir framan Verslunarmiðstöðina Sunnumörk. Við sáum þar tækifæri til að gera Hveragerði að meiri áfangastað, ekki einungis fyrir erlenda ferðamenn heldur líka Íslendinga, íbúa Suðurlands og sumarbústaðaeigendur sem eiga leið hér hjá. Svo er bara hálftíma keyrsla fyrir borgarbörnin að kíkja í ísbíltúr.“

Mathöllin er öll hin huggulegasta. Mynd / Aðsend


Húsið er samtals 2.600 fermetra stórt á fjórum hæðum og félagarnir segja þetta fjárfestingu upp á tæpan einn og hálfan milljarð króna.


Húsið er hannað af Kára Eiríkssyni arkitekt og innanhússhönnun var í höndum Hálfdans Pedersen. Á efri tveimur hæðunum eru hótelherbergi og í kjallara hússins mun opna 160 fm minjagripaverslun Nordic Store.


Á jarðhæð er móttaka hótelsins, miðjuborð með afgreiðslu og kaffihús. Verslanir á borð við Epal, Álafoss, Herrafataverzlun Kormáks&Skjaldar og bænda­markaðurinn Me&Mu hafa þar athvarf. Einnig má finna mathöll með veitingastöðunum Hipstur, Taco vagninum, Punk Fried Chicken, Yuzu burgers, Wok on og Nýlendubarnum ásamt ísbúðinni Bongó, sem Rut Káradóttir innanhússarkitekt stendur að ásamt eiginmanni sínum.


Nafn ísbúðarinnar vísar einmitt til apans Bongó, eitt af aðdráttarafli Edens í den. „Þetta er í raun Eden nútímans,“ segir Valgarð, sem hefur nokkra reynslu af rekstri veitingastaða enda kom hann Búllunni hans Tomma á fót í London.


Húsið er í svokölluðu BREEAM umhverfisvottunarferli sem á að staðfesta að verkefnið standist kröfur um sjálfbærni og lágmörkun umhverfisáhrifa. „Við höfðum sjálfbærnisjónarmið í forgrunni og vottunarkerfið kallaði á að tekið væri á grænum atriðum alveg frá fyrstu skóflustungu að kaffibollanum sem við afhendum kúnnanum,“ segir Brynjólfur.

Gróðurhúsið er 2.600 fermetrar að stærð og starfsemi þess kallar á 50–60 ný störf í Hveragerði. Mynd / ghp


Á hótelinu eru 49 herbergi. „Við teljum sniðugra fyrir erlenda ferðamenn að staðsetja sig hér, umkringda fallegri náttúru, frekar en í Reykjavík. Flestir fara í ferðir á Suðurland og eins inn í Reykjadal og Bláa lónið og allir þessir staðir eru steinsnar frá Hveragerði. Það getur því sparað þeim tíma, peninga og kolefnisspor að vera hér. Til lengri tíma sjáum við fyrir okkur að geta boðið upp á rafmagnsbíla hérna líka, fyrir þá sem vilja fara stuttar ferðir á eigin vegum,“ segir Brynjólfur.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.