„Framtíð íslensks landbúnaðar verður ekki tryggð nema samfélagið standi með bændum.“
„Framtíð íslensks landbúnaðar verður ekki tryggð nema samfélagið standi með bændum.“
Skoðun 1. júní 2026

Alþjóðlegi mjólkurdagurinn 2026

Höfundur: Sigurbjörg Ottesen

– Konur gegna lykilhlutverki í íslenskum landbúnaði

Sigurbjörg Ottesen, formaður nautgripabænda BÍ.

Alþjóðlegi mjólkurdagurinn er haldinn þann 1. júní ár hvert. Alþjóðlegi mjólkurdagurinn var settur á laggirnar af Sameinuðu þjóðunum til að vekja athygli á mikilvægi mjólkurframleiðslu fyrir heiminn allan. Þetta árið fær þessi dagur þó sérstaka og dýpri merkingu, þar sem þemar í ár er „Fögnum kvenbændum“ sem er einkum viðeigandi enda er árið tileinkað konum í landbúnaði – konum sem hafa í árhundruð staðið vaktina í íslenskri matvælaframleiðslu, oft án þess að fá þá athygli eða viðurkenningu sem þær eiga skilið.

Íslenskur landbúnaður hefur frá upphafi byggst á samvinnu fjölskyldna þar sem konur hafa gegnt lykilhlutverki. Þær hafa ekki aðeins séð um heimilin, heldur einnig tekið þátt í fjósverkum, bókhaldinu, ræktun, kynbótastarfi og almennum rekstri búanna. Í dag eru konur ekki síður leiðandi afl í nýsköpun, sjálfbærni og þróun íslensks landbúnaðar – sem kúabændur, ráðgjafar, vísindakonur, stjórnendur og frumkvöðlar.

Mjólkurframleiðsla er ein af grunnstoðum íslensks samfélags og þar gegna konur ómetanlegu hlutverki. Á hverjum degi starfa íslenskar konur í fjósum landsins. Oft er dagurinn tekin snemma til að sinna gripum og mjöltum, tryggja velferð gripa og heilnæmi íslenskra matvæla, við einhverjar ströngustu kröfur sem þekkjast í heiminum.

Þrátt fyrir mikilvægi greinarinnar hefur staða bænda verið undir stöðugum þrýstingi. Framleiðslukostnaður hefur hækkað ört á meðan afurðaverð hefur ekki fylgt sömu þróun. Það reynir sérstaklega á fjölskyldubúin – og þar með konurnar sem bera oft jafnt ábyrgð á rekstri búsins, sem og heimilisins. Þessi staða sýnir skýrt hversu mikilvægt er að stjórnvöld skilji að matvælaframleiðsla er ekki sjálfsögð og það er ekki sjálfsagt að neytendur hafi aðgang að íslenskum mjólkurvörum í hillum Sigurbjörg Ottesen. verslana.

Á Alþjóðlega mjólkurdeginum þann 1. júní 2026 er því tilefni til að staldra við og þakka þeim konum sem halda uppi íslenskri matvælaframleiðslu, alla daga ársins. Þeim sem vinna oft langa vinnudaga án frídaga, standa af sér óveður – bæði óveður í sinni skýrustu merkingu og pólitískt – og halda áfram að byggja upp íslenskan landbúnað af metnaði og ábyrgð.

Framtíð íslensks landbúnaðar verður ekki tryggð nema samfélagið standi með bændum. Og framtíð greinarinnar verður ekki byggð án þeirra kvenna sem hafa verið hjartað í íslenskum sveitum í gegnum tíðina.

Á þessum degi eigum við ekki aðeins að fagna mjólkinni – heldur líka fólkinu á bak við hana. Sérstaklega konunum sem hafa með þrautseigju, dugnaði og framtíðarsýn mótað íslenskan landbúnað kynslóð fram af kynslóð.

Höfundur er formaður nautgripabænda BÍ.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.