Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 11 ára.
Allt svo grænt
Skoðun 9. október 2014

Allt svo grænt

Höfundur: Vilmundur Hansen

Ekki er langt síðan grænt var einfaldlega fallegur litur. Einu sinn heyrði ég reyndar að liturinn væri róandi og því góður á veggi geðsjúkrahúsa og í bæklinga fyrir sjúklinga.

Í dag er grænt bæði í senn lífsstíll og pólitísk rétthugsun sem einstaklingar, stjórnmálaflokkar og fyrirtæki keppast um að tengja sig við. Talað er um græna stóriðju, grænar bensínstöðvar, græna ferðaþjónustu, grænt hagkerfi og það styttist örugglega í grænan hergagnaiðnað  – allt er svo grænt og vænt


Þrátt fyrir þessa alltumlykjandi grænu slikju er gróðureyðing á heimsvísu aldrei meiri en nú og talið að um 7,4 milljónir hektara af skóglendi tapist á ári og um leið mikil líffræðileg fjölbreytni.

Gróft áætlað er búið að greina um 325.000 ólíkar tegundir af plöntum. Þar af eru um 50.000 ætar en þótt ótrúlegt megi virðast sjá einungis þrjár tegundir, hrísgrjón, maís og hveiti, mannkyninu fyrir um 60% af fæðu sinni.

Græna byltingin í landbúnaði, milli 1940 og 1960, leiddi af sér umtalsvert meiri uppskeru og bjargaði milljónum frá hungurdauða. Eftir á hefur komið í ljós að ofurtrú á nýja og uppskeru meiri stofna hefur dregið dilk á eftir sér. Gallinn við einsleita ræktun er sá að einn skordýraplága eða sjúkdómur getur hreinlega útrýmt uppskerunni. Þar sem ræktun er fjölbreyttari er minni hætta á slíku þar sem ólíkir stofnar innan tegunda þola sjúkdóma og plágur misvel.

Varðveisla erfðaefnis úr gömlum ræktunarstofnum hófst með starfi grasafræðingsins Nikolia Vavilov sem fæddist skammt frá Moskvu árið 1887. Hann ferðaðist víða um heim og safnaði fræi af gömlum ræktunarstofnum sem geymt var í neðanjarðarhvelfingu í Pétursborg. Vavilov féll í ónáð hjá Stalín við upphaf seinni heimsstyrjaldarinnar og lést í útlegð árið 1943. Á meðan Stalín var upptekinn við að koma listmunum  í skjól vegna umsáturs Þjóðverja um Pétursborg voru samstarfsmenn Vavilov uppteknir við að bjarga fræjunum. Sagan segir að þeir hafi múrað sig inni í hvelfingunni til þess að varna því að hungraður múgurinn kæmist ekki í fræin og æti þau. Tryggðin við fræsafnið var svo mikil að mennirnir sultu eða króknuðu í hel við að gæta þeirra. Fræin eru undirstaða kornframleiðslu Rússlands nú.

Í dag eru nokkur hundruð hvelfingar víða um heim sem geyma fræ, bæði villi- og nytjaplantna, og stuðla þannig að varðveislu líffræðilegrar fjölbreytni. Ein er djúpt inni í fjalli á Svalbarða og önnur er í vörslu Kew.

Geymsla fræjanna við þessar aðstæður er góð, gild og nauðsynleg en best væri að leyfa þessum fræjum að spíra og þróast í sínu náttúrulega umhverfi þar sem allt er svo vænt og grænt í stað þess að geyma þau í frystikistu sem gengur fyrir græni orku.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.