Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Allar plastflöskur sem Coca-Cola á Íslandi framleiðir verða úr 100% endurunnu plasti (rPET) frá og með fyrsta ársfjórðungi, 2021.
Allar plastflöskur sem Coca-Cola á Íslandi framleiðir verða úr 100% endurunnu plasti (rPET) frá og með fyrsta ársfjórðungi, 2021.
Fréttir 13. janúar 2021

Allar plastflöskur verða úr 100% endurunnu plasti

Höfundur: Hörður Kristjánsson

Allar plastflöskur sem Coca-Cola á Íslandi framleiðir verða úr 100% endurunnu plasti (rPET) frá og með fyrsta ársfjórðungi, 2021. 

„Við erum einn stærsti matvælaframleiðandi landsins en því fylgir skylda og ábyrgð. Með því að skipta yfir í rPET fer notkun á nýju plasti niður um 530 tonn (86%) á hverju ári og minnkar kolefnafótspor framleiðslunnar vegna plastflaskna um sem nemur ígildi 400 tonna af koltvísýringi (CO2),“ segir Einar Snorri Magnússon, forstjóri Coca-Cola European Partners á Íslandi. 

Breytingin á við um allar plastflöskur í öllum vörumerkjum sem fyrirtækið framleiðir á Íslandi. „Það var markmið okkar að ná rPET úr 25% upp í 50% fyrir árið 2025 en við höfum flýtt því markmiði samhliða þátttöku í Net Zero 2040 áætluninni hjá Coca-Cola 

European Partners (CCEP), sem verður einnig kynnt í dag. Þessi skipti yfir í 100% endurunnið plast er stórt skref fram á við í átt að hringrásarhagkerfinu. rPET, sem er hluti af hringrásarhagkerfi, getur haft minna kolefnisfótspor en nokkrar aðrar umbúðategundir fyrir drykki.“

Sjálfbærni í forgangi

„Við höfum unnið ötullega að því að gera umbúðir okkar umhverfisvænni á undanförnum árum. Meðal aðgerða hefur verið að létta plastflöskur, sem sparaði plastnotkun um 6–14%, nota léttari tappa, sem sparaði um 6 tonn af plasti á ári, og skipta út pappír fyrir plast í ytri umbúðum. Þá fer allt plast sem fellur til við framleiðslu eða rekstur okkar til Pure North í Hveragerði sem endurvinnur plastið með umhverfisvænum orkugjöfum þar sem jarðvarmi er í aðalhlutverki,“ útskýrir Einar Snorri.  

Net Zero 2040 áætlun CCEP er metnaðarfull, með skýrum markmiðum og dagsetningum. Þar má nefna að draga á úr heildarlosun gróðurhúsalofttegunda þvert á alla aðfangakeðjuna um 30% fyrir árið 2030, þ.m.t. losun skv. umfangi 1, 2, og 3 (bein og óbein losun), en miðað er við grunnár 2019. Þá er stefnt á að fyrirtækið verði kolefnishlutlaust fyrir árið 2040, í samræmi við Parísarsamkomulagið um að ná að halda hlýnun jarðar undir 1,5 ˚C. Þess má einnig geta að Coca-Cola á Íslandi er í samstarfi við sérfræðinga hjá Klöppum sem aðstoða fyrirtækið við gerð nákvæms kolefnisbókhalds.

Alþjóðleg skuldbinding um að endurvinna plast

Endurvinnslan ehf. sér um að senda allar plastumbúðir sem safnast til endurvinnslu erlendis. Hollenska fyrirtækið Morssinkhof kaupir plastið og selur það endurunnið til umbúðabirgja okkar þar sem það verður að flöskum úr endurunnu plasti. 

Skiptin yfir í endurunnið plast eru hluti af sjálfbærnistefnu CCEP og The Coca-Cola Company í Vestur-Evrópu, Áfram veginn (e. This is Forward) þar sem fyrirtækin heita því að tryggja að a.m.k. 50% af plastflöskunum verði úr rPET. Átakið hefur nú verið stóreflt og nýtt markmið er að engar plastflöskur verði framleiddar úr nýju plasti innan áratugs. 

„Við verðum eitt af fyrstu löndunum til að ná þessu markmiði ásamt Noregi, Svíþjóð og Hollandi, en til þess að þetta sé mögulegt þurfa lönd að uppfylla ákveðnar grunnforsendur, til að mynda að endurvinnsluhlutfall sé hátt og endurvinnslan sjálf sé skilvirk,“ útskýrir Einar Snorri og bætir við að plast geti verið sjálfbær umbúðakostur ef því er safnað og það endurunnið í hringrásarhagkerfi.  

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.