Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja Evrópusambandsins til að styrkja grunnstoðir landbúnaðarins.

Yfirlýsingin er í sex liðum. Þar er kallað eftir að lágmarki óbreyttum uppreiknuðum fjárframlögum til landbúnaðarstefnunnar og því að landbúnaður verði viðurkenndur sem stefnumótandi atvinnuvegur fyrir samkeppnishæfni, seiglu og öryggi Evrópu.

Harma lítið samráð

Regnhlífarsamtök evrópskra bænda og samvinnufélaga í landbúnaði, Copa og Cogeca, gáfu Stokkhólmsyfirlýsinguna út í kjölfar þings samtakanna í Stokkhólmi á dögunum. Henni er ætlað að undirstrika alvarleika þeirrar stöðu sem nú er uppi og er ákall til ráðamanna ríkja sambandsins, sem funda í Brussel.

Leiðtogar samtakanna kveðast meðvitaðir um geó-pólitískar, efnahagslegar og umhverfisáskoranir í Evrópu, áhyggjufullir yfir hækkandi kostnaði við aðföng, uggandi yfir fækkun og lífskjörum bænda, meðvitaðir um matvælaverð og minnugir þess að samkvæmt síðustu mælingu Eurobarometer finnst 95% af Evrópubúum landbúnaður og dreifbýli mikilvægt fyrir framtíðina.

Þeir harma lítið samráð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um breytingar á sameiginlegu landbúnaðarstefnunni (CAP) sem á að gilda fyrir árin 2028–2034; þær hafi verið án valkosta og án mats á áhrifum.

Landbúnaður í fremstu varnarlínu

Veðurfar í sumar gerði bændum í Evrópu erfitt fyrir og afhjúpaði enn og aftur viðkvæmni landbúnaðar í álfunni. Stríð og togstreita í viðskiptum og óstöðugleiki í alþjóðamálum juku enn á óróleika á alþjóðamörkuðum, ýttu undir verðbólgu og þrýsting á landbúnaðarframleiðslu.

Í fréttatilkynningu kemur fram að núverandi áætlanir um fjármögnun landbúnaðarstefnunnar veiki hana og fyrirsjáanleika vanti. Leiðtogar samtakanna vara við að landbúnaður í Evrópu nálgist þolmörk.

Í yfirlýsingunni er kallað eftir því að landbúnaður verði viðurkenndur sem grunnstoð í varnar-, viðbúnaðar- og öryggismálum; matvælaframleiðendur séu í fremstu varnarlínu álfunnar.

Stefnan haldist almenn

Kallað er eftir að landbúnaðarstefnan haldist almenn (Common Agricultural Policy), það sé grunnurinn að innri markaðnum, en að hún verði ekki árangursmiðaðri eins og nú er stefnt að. Það er talið munu valda óróleika á innri markaðnum og auka samkeppni aðildarríkja, svæða og hagaðila um aðföng. „Í húfi er ekkert minna en afdráttarlaust brotthvarf frá hluta af sögulegri stefnu ESB og skýr pólitísk skilaboð um aukna þjóðaráherslu og sundrungu.“

Fjárframlög til landbúnaðarstefnunnar verða að lágmarki að haldast óskert og uppreiknast samkvæmt verðlagi samkvæmt yfirlýsingunni. Þau þurfi að haldast aðgreind frá öðru fjármagni og markmiðum, svo sem um nýtingu 10% fjármagns úr lands- og svæðisbundnum áætlunum til sérstakra áskorana á landsbyggðinni.

Þá er kallað eftir einföldun regluverksins og auknum fyrirsjáanleika. Fjölbreytileiki í landbúnaði er mikill og breytingarnar taldar þrengja að honum, stuðningur þurfi að vera í boði fyrir alla bændur.

Bændasamtök Íslands eru samstarfsaðili Copa og Cogeca.

Skylt efni: stokkholmsyfirlysing

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...