Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Ágúst Torfi Hauksson nýr framkvæmdastjóri Norðlenska
Fréttir 27. október 2015

Ágúst Torfi Hauksson nýr framkvæmdastjóri Norðlenska

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Ágúst Torfi Hauksson verkfræðingur hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Norðlenska. Hann mun taka við starfinu af Sigmundi E. Ófeigssyni sem lætur nú af störfum eftir 14 ára starf.
 
Ágúst Torfi lauk B.Sc. gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands 1999 og M.Sc. gráðu í vélaverkfræði frá University of British Columbia, Kanada árið 2001.
 
Ágúst Torfi Hauksson.
Ágúst Torfi hefur víðtæka reynslu af rekstri fyrirtækja bæði sem forstjóri, framkvæmdastjóri og sem stjórnarmaður. Á árunum 2005–2011 var hann framkvæmdastjóri hjá Brim hf., er sneri að stjórnun á umsvifum félagsins við Eyjafjörð. Á árunum 2011–2012 var hann forstjóri Norðurorku hf., á Akureyri. Á árinu 2012 var hann forstjóri Jarðborana hf., en hefur frá árinu 2013 verið sjálfstætt starfandi ráðgjafi í verk­efnum tengdum sjávarútvegi og orkumálum. Þá hefur hann setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja, lífeyrissjóðs og félaga.
 
Heiðrún Jónsdóttir, stjórnarformaður Norðlenska, segir mikinn feng af því að hafa fengið Ágúst Torfa til Norðlenska. Stjórn félagsins telur reynslu hans úr fyrirtækjarekstri og stjórnun, þá ekki síst í matvælaiðnaði, nýtast félaginu vel í þeim verkefnum sem fram undan eru hjá félaginu. „Við teljum hann henta vel til að vinna með fjölmennum hópi eigenda og samhentum hópi stjórnenda og starfsmanna. Við hlökkum til samstarfsins,“ er eftir Heiðrúnu haft í tilkynningu frá félaginu.
 
Ágúst Torfi, verðandi framkvæmdastjóri félagsins, segir það afar spennandi verkefni að takast á við rekstur Norðlenska, kynnast eigendum félagsins og sterkum hópi starfsmanna.  „Norðlenska er öflugt félag í matvælaframleiðslu, leiðandi á ýmsum sviðum og með mikla möguleika til að vaxa og dafna á komandi árum.  Það verður gaman að fá að taka þátt í þeirri vinnu sem framundan er hjá félaginu.“
Ágúst Torfi mun hefja störf í byrjun október. Hann er kvæntur Evu Hlín Dereksdóttur verkfræðingi og eiga þau tvær dætur.
 
Norðlenska var stofnað á grunni Kjötiðnaðarstöðvar KEA árið 2000 er hún var sameinuð Kjötiðjunni á Húsavík. Í kjölfarið keypti félagið þrjár kjötvinnslur Goða hf. Á Akureyri eru höfuðstöðvar fyrirtækisins, stórgripasláturhús og kjötvinnsla, á Húsavík er sauðfjársláturhús og kjötvinnsla, á Höfn er sauðfjársláturhús og í Kópavogi er söluskrifstofa. Eigandi Norðlenska er Búsæld, félag kjötframleiðenda í Eyjafirði, Þingeyjarsýslum og á Austur- og Suðausturlandi. Ársvelta Norðlenska árið 2014 var um 5.200 m.kr. Hjá fyrirtækinu eru um 195 stöðugildi að meðaltali. 

Skylt efni: Norðlenska

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.