„Þótt við höfum lítil áhrif á hækkandi aðfangaverð og önnur ytri skilyrði, sem breytast ört um þessar mundir, getum við sjálf haft veruleg áhrif á holdafar, fóðrun og heilbrigði hjarðarinnar.“
„Þótt við höfum lítil áhrif á hækkandi aðfangaverð og önnur ytri skilyrði, sem breytast ört um þessar mundir, getum við sjálf haft veruleg áhrif á holdafar, fóðrun og heilbrigði hjarðarinnar.“
Mynd / smh
Á faglegum nótum 17. nóvember 2026

Afurðasemi er engin tilviljun

Höfundur: Eyjólfur Ingvi Bjarnason
Eyjólfur Ingvi Bjarnason

– Leggjum grunninn að afurðaárinu 2027

Góður árangur í sauðfjárrækt byggist á mörgum samverkandi þáttum og markvissri bústjórn allt árið um kring. Nú þegar fengitíminn nálgast er kjörið tækifæri til að huga að þeim þáttum sem geta stuðlað að aukinni frjósemi og fleiri vænum lömbum á næsta afurðaári. Á komandi vikum leggjum við mikilvægan grunn að lambafjölda næsta vors og þar með afurðum næsta hausts.

Þótt við höfum lítil áhrif á hækkandi aðfangaverð og önnur ytri skilyrði, sem breytast ört um þessar mundir, getum við sjálf haft veruleg áhrif á holdafar, fóðrun og heilbrigði hjarðarinnar. Þegar þrengir að í rekstri og hver króna skiptir máli er því ekki síður mikilvægt að átta sig á hvar skynsamlegt er að kosta til en hvar hægt er að spara. Réttar ákvarðanir á réttum tíma geta skilað sér í auknum afurðum og bættri afkomu.

Afurðasemi skiptir máli fyrir afkomuna

Í skýrslu RML um rekstur sauðfjárbúa 2022–2024, sem byggir meðal annars á gögnum frá 199 búum árið 2024, kemur fram að framlegð á vetrarfóðraða kind var um 20.995 krónur hjá afurðaminnstu búunum en 41.340 krónur hjá þeim afurðamestu. Afurðamestu búin skiluðu fleiri lömbum til nytja og meiri fallþunga, lögðu meira upp úr endurræktun túna, áburðarnotkun og ræktunarstarfi, en voru þó ekki með hærri breytilegan kostnað á kind. Það undirstrikar mikilvægi þess að nýta aðföngin vel, fremur en að einblína á lægsta mögulega kostnað.

Holdafar og fóðrun fyrir fengitíma

Holdafar hefur áhrif á egglos og frjósemi. Því er rétt að holdastiga ærnar tímanlega, flokka þær sem eru rýrar og haga fóðrun eftir þörfum. Holdastig um 3–3,5 á fimm stiga kvarða getur verið gagnlegt viðmið fyrir fullorðnar ær. Sérstakt fengieldi getur bætt egglos, einkum hjá ám í rýrum eða miðlungs holdum. Það er ekki ástæða til að gefa öllum ám meira af handahófi: heyefnagreining, át og holdafar eiga að ráða ferðinni.

Fyrstu vikur meðgöngu skipta einnig máli. Forðast þarf snöggar fóðurbreytingar, verulegan næringarskort og óþarfa álag meðan fósturvísar þroskast og taka sér bólfestu. Ávinningur af góðum undirbúningi getur farið forgörðum ef næringarástandið versnar strax eftir fang.

Snefilefni – vitum við nóg um það sem er í heyinu?

Í nýlegri grein í breska tímaritinu Sheep Farmer er sérstaklega fjallað um mikilvægi fjögurra snefilefna fyrir frjósemi sauðfjár: joðs, selens, kóbalts og kopars.

Joð er nauðsynlegt fyrir starfsemi skjaldkirtils og eðlilegan fósturþroska. Selen gegnir mikilvægu hlutverki í andoxunarvörnum og ónæmiskerfi, auk þess að tengjast æxlunarheilbrigði. Kóbalt er nauðsynlegt fyrir örverur vambarinnar til að mynda B12vítamín og skortur getur meðal annars haft áhrif á vöxt og næringarnýtingu. Kopar kemur við sögu í fjölmörgum efnaskiptaferlum, en sauðfé er jafnframt mjög viðkvæmt fyrir kopareitrun.

Það sem vekur athygli við þessa umfjöllun er hversu takmarkaðar upplýsingar við höfum almennt um innihald þessara snefilefna í íslensku heyi. Við höfum á undanförnum árum byggt upp góða þekkingu á orkugildi, próteininnihaldi og ýmsum öðrum þáttum í heyjum, en snefilefnin hafa ekki fengið sambærilega athygli í almennum heyefnagreiningum líklega vegna þess að greining þeirra kostar aukalega.

Það er líka rétt að hafa í huga að magn snefilefna í heyinu segir ekki alla söguna. Nýting þeirra getur verið breytileg og samspil einstakra steinefna haft áhrif á hversu vel þau nýtast gripunum. Því þarf að túlka niðurstöður heyefnagreininga í samhengi við heildarfóðrun og í einhverjum tilvikum þyrfti að taka sýni úr gripum til að skoða.

Við ættum að mínu mati að leggja meiri áherslu á rannsóknir á snefilefnainnihaldi íslensks gróffóðurs. Betri þekking á þessum þáttum gæti hjálpað okkur að fóðra markvissar, forðast óþarfa kostnað og jafnframt tryggja að raunverulegur skortur standi ekki í vegi fyrir eðlilegri frjósemi og afurðasemi.

Ekki gleyma hrútunum

Einn hrútur með skerta frjósemi getur haft mikil áhrif. Sæðisframleiðsla tekur margar vikur og því þarf að yfirfara holdafar, klaufir, hreyfigetu og eistu með góðum fyrirvara. Veikindi og hiti geta haft áhrif á sæðisgæði síðar.

Á búi með 400 vetrarfóðraðar ær þýðir aukning um 0,05 fædd lömb á á 20 fleiri lömb, en aukning um 0,10 skilar 40 lömbum til viðbótar. Miðað við 17 kg meðalfallþunga, 1.125 króna afurðaverð og 320 króna gæðastýringarálag á kíló gætu 20 viðbótarlömb skilað tæplega hálfri milljón króna í auknar tekjur og 40 lömb nærri einni milljón. Auðvitað skila ekki öll fædd lömb sér til slátrunar og aukinn lambafjöldi getur kallað á meiri vinnu og kostnað. Dæmið sýnir þó vel hversu miklu tiltölulega lítil aukning í frjósemi getur skipt fyrir tekjumöguleika búsins. Markmiðið er enda ekki aðeins að fá fleiri lömb fædd, heldur að sem flest þeirra verði heilbrigð og væn lömb sem skila sér til nytja.

Nýtum tækifærin – uppskeran hefst með góðum undirbúningi

Þótt rekstrarumhverfi sauðfjár- ræktarinnar sé krefjandi megum við ekki missa sjónar á þeim tækifærum sem felast í góðri búmennsku. Við búum yfir þekkingu, reynslu og öflugum verkfærum á borð við holdastigun, heyefnagreiningar, skýrsluhald og faglega ráðgjöf. Með því að nýta þau markvisst getum við lagt grunn að meiri afurðum og bættri afkomu.

Nú er rétti tíminn til að huga að fóðruninni, yfirfara hrútana og sinna sérstaklega þeim ám sem þurfa á aukinni umönnun að halda. Það þarf ekki alltaf stórar breytingar til að ná árangri, en réttar ákvarðanir á réttum tíma geta skipt sköpum.

Við þurfum vissulega að gæta að hverri krónu, en um leið að hafa kjark til að fjárfesta þar sem það getur skilað okkur auknum afurðum.

Góður árangur að hausti verður ekki til af sjálfu sér. Grunnurinn er lagður löngu fyrr, með útsjónarsemi, þekkingu og góðri búmennsku. Því eins og sagt er: Þeir uppskera sem til sá.

Heimildir: RML (2026). Rekstur sauðfjárbúa 2022–2024, lokaskýrsla. https://www.rml.is/static/files/ RML_Rekstur/2026/rekstur-saudfjarbua2024-lokaskyrsla.pdf Noblett, E. (2026).

„Key considerations for a successful tupping and early pregnancy“. Sheep Farmer, október/nóvember 2026, bls. 30–31.

Höfundur er formaður deildar sauðfjárbænda innan BÍ og ráðunautur hjá RML.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...