Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
LED-ljós á blómabúinu Espiflöt í Reykholti.
LED-ljós á blómabúinu Espiflöt í Reykholti.
Mynd / Espiflöt
Fréttir 18. febrúar 2026

Áfram stutt við LED-væðingu garðyrkjubænda

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Loftslags- og orkusjóður úthlutaði nýverið rúmlega 118 milljónum króna í styrki til orkusparandi verkefna í gróðurhúsum.

Styrkirnir renna til 11 býla og miða að því að draga úr raforkunotkun og bæta orkunýtni íslenskra gróðurhúsa. Fyrst og fremst er þar um að ræða innleiðingu á LED-ljósabúnaði og annars orkusparandi búnaðar, sem getur dregið úr raforkunotkun í gróðurhúsum um 40–60%.

Sambærileg úthlutun var síðasta sumar þegar sjóðurinn úthlutaði sömu fjárhæð til tíu verkefna. Í umfjöllun umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins kemur fram að samanlagt er gert ráð fyrir að verkefnið geti náð fram raforkusparnaði sem nemur 17,8 gígavattstundum á ári. Það samsvari árlegri raforkunotkun 3.900 heimila eða árlegri notkun 5.900 rafbíla.

Haft er eftir Jóhanni Páli Jóhannssyni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að þetta sé í fyrsta skiptið í áratugi sem stjórnvöld ráðist í skipulegan fjárfestingastuðning við framleiðendur garðyrkjuafurða. „Styrkirnir skila sér í lækkandi raforkukostnaði og þannig aukinni framleiðni og samkeppnishæfni ylræktar á Íslandi, sem aftur skilar sér til neytenda og samfélagsins alls.“

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...