Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Af samgöngum
Mynd / Viktor Arnar Ingólfsson
Skoðun 10. febrúar 2022

Af samgöngum

Höfundur: Hörður Kristjánsson

Þegar lognið flippar út og tekur upp á því að ferðast um háloftin með ógnarhraða og draga jafnvel með sér vatnsdropa og snjókorn út í vitleysuna er ekki von á góðu. Slíkt hafa Íslendingar fengið að finna fyrir undanfarna daga og í raun meira og minna það sem af er ári.

Við duttlungum í veðurfari tjáir lítt að þenja sig, þó við sjáum það gjarnan á samfélagsmiðlum nútímans að fólk pirri sig við slíku. Grípa þá sumir til að agnúast út í veðurfræðinga líkt og tapsárir fótboltaáhugamenn sem öskra hástöfum á hliðarlínunni; út af með dómarann, út af með dómarann! – Bölmóðsfrík með allt á hornum sér geta þó vart réttlætt lengur viðbrögð af þessum toga gagnvart veðurfræðingum, því þeir hafa sannarlega sýnt það að undanförnu hversu glöggir þeir eru orðnir að spá fyrir væntanleg veður, og það jafnvel með viku til hálfsmánaðar fyrirvara eða meira.

Óveður og ófærð fær fólk þó gjarnan til að leiða hugann að mikilvægi greiðra samgangna. Með auknum búferla­flutn­ingum fólks út fyrir borgarmörk Reykjavíkur og sér í lagi austur fyrir Hellisheiði verða raddir t.d. háværari um nauðsyn þess að halda opnum veginum alla daga ársins. Fólk þurfi jú nauðsynlega að komast til og frá vinnu. Furðar fólk sig á því af hverju sægur moksturstækja sé ekki til reiðu til að mæta þeirra kröfum um greiðar samgöngur þegar það þarf  á að halda. Ekki er laust við að fólk í harðbýlli landshlutum vestan-, norðan- og austanlands fyllist nokkurri undrun yfir slíkum viðbrögðum.

Ef litið er yfir sögu byggðar á Íslandi, þá er augljóst að góðar samgöngur hafa alltaf verið lykillinn að því að byggð gæti þrifist til lengri tíma. Ferðalög milli landshluta voru þá nær eingöngu iðkuð þegar minnstar líkur voru á óveðrum og snjókomu. Flutningar fólks og varnings fóru þá að mestu fram með skipum. Þannig var þessu háttað langt fram á síðustu öld, eða þar til bifreiðar fóru að verða algengar og til akfærir vegir sem voru gerðir milli landshluta. Samt var þessi tæknibylting í samgöngunum með flutningum á fólki og vörum milli landshluta með bílum ekki veruleiki sem allir gátu treyst á.

Lengi fram eftir síðustu öld voru sumir staðir án almennilegs vegasambands. Vegurinn um Óshlíð til Bolungarvíkur var t.d. ekki opnaður fyrr en öldin var að verða hálfnuð og sömuleiðis vegurinn frá Ísafirði til Súðavíkur. Þá var komið fram á áttunda áratug síðustu aldar að vegur var opnaður um Ísafjarðardjúp. Enn á árinu 2022 búa Vestfirðingar við þá nöturlegu staðreynd að samgöngur á landi eru mjög erfiðar. Vegabætur á sunnanverðum Vestfjörðum hafa svo, aðallega af umhverfispólitískum ástæðum, verið að miklu leyti látnar sitja á hakanum í áratugi. Íbúar í þessum landshluta þurfa oft dögum og jafnvel vikum saman að búa við algjört samgönguleysi á vegum vegna ófærðar og snjóflóðahættu. Á meðan staðan er slík í heilu landshlutunum er ekki skrítið að íbúar þar fái kjánahroll þegar kvartað er yfir að fólk komist ekki ferða sinna allan sólarhringinn þegar nær dregur höfuðborgarsvæðinu.

Sama hvað líður tölvutækni og hug­tökum um störf án staðsetningar, eru góðar samgöngur enn lykillinn að því að lífvænlegt þjóðfélag geti  þrifist. Pólitískir fulltrúar okkar geta ekki horft framhjá þessari staðreynd. Ef menn vilja halda uppi lífvænlegri byggð í landinu þá verður einfaldlega að gera betur en gert hefur verið í sumum landshlutum til þessa.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.