Meðal forgangsaðgerða nýrrar aðgerðaáætlunar um líffræðilega fjölbreytni er að innleiða hvata fyrir sjálfbæra landnýtingu.
Meðal forgangsaðgerða nýrrar aðgerðaáætlunar um líffræðilega fjölbreytni er að innleiða hvata fyrir sjálfbæra landnýtingu.
Mynd / smh
Fréttir 10. nóvember 2026

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– Hvatar fyrir sjálfbæra landnýtingu landeigenda

Út er komin aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Meðal forgangsaðgerða er að samþætta náttúruvernd og búskaparhætti og innleiða hvata fyrir sjálfbæra landnýtingu.

Aðgerðaáætlunin kemur í kjölfar stefnu Íslands um líffræðilega fjölbreytni til 2030 sem samþykkt var í upphafi árs.

Samþætting náttúruverndar og búskaparhátta

Forgangsaðgerðirnar eru fimm: verndarsvæði í hafi, virk svæðisvernd á landi, átak í gerð stjórnunar- og verndaráætlana, landbúnaður og náttúruvernd og innleiðing hvata fyrir vernd og endurheimt vistkerfa og sjálfbæra landnýtingu.

Með aðgerðinni um virka svæðisvernd á landi er markmiðið að skilgreina og efla svæðisbundna vernd líffræðilegrar fjölbreytni á landi sem styður við markmið Íslands um að 30% landsvæða verði undir skipulagðri vernd fyrir árið 2030.

Aðgerðin Landbúnaður og náttúruvernd miðar að því að efla líffræðilega fjölbreytni í landbúnaði með samþættingu náttúruverndar og búskaparhátta, þróun þekkingar og innleiðingu hvetjandi styrkjakerfa. Henni er ætlað að efla samstarf við bændur og landeigendur um sjálfbæra landnýtingu þar sem líffræðileg fjölbreytni er höfð að leiðarljósi. Unnið verður að því að brúa bilið á milli framleiðslumarkmiða landbúnaðar og verndar náttúru með ýmsum skilgreindum leiðum. Gert er ráð fyrir tímalínu áranna 2027–2029 fyrir þessa aðgerð.

Stuðningsverkefni í landgræðslu og skógrækt

Með innleiðingu hvata fyrir vernd og endurheimt vistkerfa og sjálfbæra landnýtingu er markmiðið að efla og styðja markvissa vernd og endurheimt vistkerfa og sjálfbæra landnýtingu í samstarfi við landeigendur. Með þessu er stefnt að því að auka það flatarmál sem fellur undir 30% markmiðin um virka vernd og endurheimt vistkerfa fyrir árið 2030.

Í lýsingu á aðgerðinni segir að veruleg tækifæri liggi í samstarfi við bændur og aðra landeigendur um sjálfbæra landnýtingu. Aðgerðin feli í sér að efla og samræma fjárhagslega hvata, ráðgjöf og framkvæmdagetu til að styðja við náttúrumiðaðar lausnir sem stuðla að vernd og endurheimt vistkerfa og sjálfbærri landnýtingu.

Aðgerðin byggi meðal annars á nýrri reglugerð sem tók gildi í janúar 2026 um hvata- og stuðningsverkefni í landgræðslu og skógrækt og felur meðal annars í sér stuðning við verndun kolefnisríkra og líffræðilega mikilvægra vistkerfa, endurheimt votlendis, birkiskóga og annarra raskaðra vistkerfa, gerð heildstæðra landnýtingaráætlana fyrir jarðir og landslagsheildir og samræmda ráðgjöf til bænda og landeigenda um náttúrumiðaðar lausnir.

Jafnframt sé lagt upp úr því að auka samráð og þátttöku bænda og landeigenda í framkvæmd og eftirfylgni aðgerða, þar á meðal vöktunar. Markmiðið sé að skapa aðstæður þar sem landeigendur hafi raunhæf og fyrirsjáanleg tækifæri til að varðveita og auka náttúruverðmæti landa sinna samhliða sjálfbærri landnýtingu. Gert er ráð fyrir tímalínu áranna 2027–2028 fyrir þessa aðgerð.

Engin landsmarkmið náðst

Þótt umfangsmiklar upplýsingar liggi fyrir um ástand og þróun einstakra vistkerfa, tegunda plantna og dýra á Íslandi skortir nýlegt heildstætt mat á þróun líffræðilegrar fjölbreytni í landinu. Í nýju aðgerðaáætluninni er hins vegar gert ráð fyrir að umfang hnignaðra vistkerfa á Íslandi verði metið og kortlagt árið 2027. Niðurstöðurnar munu varpa mikilvægu ljósi á ástand lífríkisins, þótt matið nái ekki til allra þátta líffræðilegrar fjölbreytni, svo sem stofnþróunar tegunda dýra og plantna og erfðafræðilegrar fjölbreytni.

Í nýlegri landsskýrslu Íslands til samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni kemur fram að einungis hafi verið unnt að skila upplýsingum um átta af 27 meginmælikvörðum alþjóðlega rammasamkomulagsins. Af 21 landsmarkmiði Íslands hafði ekkert þeirra sem metin voru náðst eða var á réttri leið miðað við núverandi framkvæmdahraða. Staða um þriðjungs markmiðanna var þó ekki metin.

Samkvæmt landsskýrslunni var 20,2% landsvæðis Íslands innan friðlýstra svæða árið 2025, en markmið stjórnvalda er að 30% landsvæða verði undir skipulagðri vernd fyrir árið 2030.

Alþjóðlegar rannsóknir hafa sýnt fram á verulega hnignun líffræðilegrar fjölbreytni á heimsvísu á undanförnum áratugum, sem meðal annars birtist í eyðingu búsvæða dýra og plantna og fækkun í stofnum fjölmargra tegunda. 

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...